SKIPULAGSSKRÁ nr. 586/1998

fyrir Listaháskóla Íslands.


1. gr.
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun međ sérstaka stjórn. Heimili hans og varnar-ţing er í Reykjavík.
Stofnfé sjálfseignarstofnunarinnar er eigiđ fé hennar ţann 21. september 1998, kr. 500.000. Stofnféđ skal ávallt haldast óskert ađ raungildi.

2. gr.
Listaháskóli Íslands er háskólastofnun sem sinnir ćđri menntun á sviđi listgreina, sem uppfylla kröfur sem gerđar eru til kennslu og rannsókna á háskólastigi. Listaháskóli Íslands skal jafnframt vinna ađ eflingu listmennta međ ţjóđinni og miđla frćđslu um listir og menningu til almennings.

3. gr.
Stjórn skólans er skipuđ 5 mönnum til tveggja ára í senn og skal enginn ţeirra hafa framfćri sitt af starfi viđ skólann eđa stunda nám viđ skólann. Menntamálaráđherra tilnefnir tvo menn í stjórnina en ţrír skulu kjörnir á ađalfundi félags um Listaháskóla Íslands. Stjórnin kýs sér formann og varaformann úr sínum hópi. Starfsár stjórnarinnar hefst 1. apríl ár hvert.
Stjórn skólans er heimilt ađ skipa starfsnefndir til ţess ađ sinna sérstökum mála-flokkum. Stjórnarmenn skulu eiga sćti í starfsnefndum. Hver slík nefnd ber ábyrgđ á störfum sínum gagnvart stjórn.

4. gr.
Stjórn skólans skal standa vörđ um hlutverk skólans og gćta ţess ađ starfsemin ţjóni settum markmiđum. Hún ber ábyrgđ á rekstri, fjárhag, eignum og ákvarđar skólagjöld. Stjórnin rćđur jafnframt rektor skólans.

5. gr.
Rektor er ráđinn til fimm ára í senn. Stađan skal auglýst laus til umsóknar. Rektor annast rekstur og stjórn skólans í umbođi stjórnar og ber ábyrgđ gagnvart henni. Hann er ábyrgur fyrir ađ starfstilhögun sé í samrćmi viđ hlutverk, markmiđ og gćđakröfur, m.a. hvađ varđar námsskrá og kennslufyrirkomulag. Rektor er ábyrgur fyrir ráđningu starfs-manna. Helstu yfirmenn skólans skal rektor ráđa í samráđi viđ stjórn.

6. gr.
Skipa skal starfi skólans í deildir eftir listgreinum. Stjórn skólans ákvarđar deilda-skiptingu. Stjórn skólans setur deildum starfsreglur. Yfirstjórn hverrar deildar er falin deildar-forseta. Störf deildarforseta skulu auglýst laus til umsóknar til allt ađ ţriggja ára í senn. Rektor rćđur deildarforseta ađ höfđu samráđi viđ stjórn.

7. gr.
Fyrir hverja deild skólans skal setja námsskrá sem kveđur á um markmiđ, inntak og meginviđfangsefni námsins. Deildarforsetar bera ábyrgđ á gerđ námsskrár en rektor skal stađfesta hana. Á grundvelli námsskrár skal árlega gefa út kennsluskrá ţar sem m.a. er gerđ grein fyrir tilhögun náms, kennsluháttum og námsmati. Rektor ber ábyrgđ á gerđ kennslu-skrár. Í kennsluskrá eđa öđrum starfsáćtlunum einstakra deilda skal ennfremur kveđiđ á um missera- eđa annaskiptingu, kennslutíma, próftímabil, leyfi og önnur atriđi er varđa skipulag náms.

8. gr.
Viđ skólann starfar skólaráđ sem skal vera stjórn skólans til ráđgjafar. Jafnframt skal skólaráđ vera ćđsti úrskurđarađili innan skólans í agamálum og í málum er varđa réttindi nemenda. Í skólaráđi eiga sćti rektor, sem er formađur ráđsins, deildarforsetar, fulltrúi kennara úr hverri deild, sem skulu tilnefndir af kennurum hverrar deildar til eins árs í senn og fulltrúi nemenda úr hverri deild, sem eru kjörnir af nemendum hverrar deildar til eins árs í senn. Stjórn skólans getur leitađ umsagnar skólaráđs um hvađ eina er varđar starfsemi skólans og ţróun hans. Stjórn skólans setur skólaráđi starfsreglur.

9. gr.
Eftir tilnefningu stjórnar skal rektor skipa innan hverrar deildar skólans ţriggja manna dómnefnd til tveggja ára í senn, til ţess ađ dćma um hćfi umsćkjenda til ţess ađ gegna stöđu fastráđinna kennara eđa deildarforseta viđ skólann. Í einstökum tilfellum getur rektor skipađ sérstaka dómnefnd eftir tilnefningu stjórnar ef hann telur ţađ nauđsynlegt til ţess ađ tryggja rétt hćfismat. Engan má ráđa, sem fastráđinn kennara eđa sem deildarforseta, nema meirihluti dómnefndar hafi látiđ ţađ álit í ljós ađ hann sé til ţess hćfur.

10. gr.
Reikningsár skólans er almanaksáriđ og skal rektor innan ţriggja mánađa frá lokum reikningsárs leggja endurskođađan ársreikning ásamt skýrslu um starfsemina fyrir stjórn skólans. Rektor skal fyrir 1. maí ár hvert leggja rekstraráćtlun nćsta reikningsárs fyrir stjórn skólans til afgreiđslu.

11. gr.
Ákveđi stjórn Listaháskóla Íslands ađ leggja skólann niđur sem sjálfseignarstofnun skal skilanefnd, skipuđ einum fulltrúa frá hvorum tilnefningarađila fyrir sig í stjórn skólans skólans, ákveđa hverniđ ađ niđurlagningu verđur stađiđ.

12. gr.
Menntamálaráđuneyti ábyrgist fjárstuđning viđ Listaháskóla Íslands er byggist á samn-ingi fyrir ţá ţjónustu er skólinn veitir. Menntamálaráđherra ábyrgist jafnframt ađ gerđur verđi sérstakur samningur viđ skólann um afnot af húsnćđinu ađ Laugarnesvegi 91, Reykja-vík.
Skólanum er heimilt ađ gera samninga um fjárstuđning eđa annars konar stuđning viđ hvern ţann sem vill veita skólanum fjárhagslegt liđ eđa nýta sér ţjónustu hans. Skólinn ber ábyrgđ á skuldbindingum sínum.

13. gr.
Stjórn skólans skal árlega halda opinn ársfund, ţar sem fjárhagur skólans og megin-atriđi starfsáćtlunar hans eru kynnt. Stjórn skólans skal setja reglur um fyrirkomulag árs-fundar.

14. gr.
Stjórn skólans getur međ samhljóđa samţykkt breytt skipulagsskrá ţessari.
Breytingar á skipulagsskrá ţessari verđa ađeins samţykktar á löglega bođuđum fundi stjórnar enda hafi tillaga um slíkt veriđ kynnt í fundarbođi.

Ţannig samţykkt á stofnfundi mánudaginn 21. september 1998.

Skipulagsskrá ţessi stađfestist hér međ samkvćmt lögum um sjóđi og stofnanir sem starfa samkvćmt stađfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

Dóms- og kirkjumálaráđuneytinu, 29. september 1998.

F. h. r.
Ţorsteinn Geirsson.
Fanney Óskarsdóttir.

Slóđ ađ ţessu skjali: http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/nrar/skipulagsskrar5861998


Til baka í allar tegundir