Skipulagsskrá nr. 502/2006 fyrir Námssjóð Sameinaðra verktaka hf. við Háskólann í Reykjavík
1. gr.
Sjóðurinn heitir Námssjóður Sameinaðra verktaka hf. við Háskólann í Reykjavík.
Sjóðurinn tekur við námssjóði sem Sameinaðir verktakar hf. stofnuðu til að styrkja efnilega námsmenn í tæknifræðum og kallaðist Námssjóður Sameinaðra verktaka hf. við Tækniskóla Íslands og falla allar eignir þess sjóðs til þessa sjóðs við stofnun.
2. gr.
Markmiðs sjóðsins er að styrkja efnilega námsmenn í tækni- og verkfræðideild til framhaldsnáms samkvæmt ákvörðun sjóðstjórnar og ákvæðum stofnskrár þessarar.
Stofnfé sjóðsins er kr. 11.725.000 –krónur ellefu milljónir sjöhundruð tuttugu og fimmþúsund. Þar af telst bundinn höfuðstóll kr. 10.000.000 sem ekki má skerða.
(Miðað er við neysluverðsvísitölu 1. júní 1998, 183,7).
Öðrum eignum og áföllnum vöxtum má sjóðstjórnin úthluta sem styrkjum samkvæmt ákvæðum skipulagsskrár þessarar.
3. gr.
Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur mönnum. Háskólinn í Reykjavík tilnefnir tvo menn og menntamálaráðuneytið einn, og skal sá síðastnefndi vera formaður. Tilnefning stjórnarmanna er til þriggja ára í senn. Tilkynning um hverjir skipi stjórn sjóðsins skal senda Ríkisendurskoðun.
4. gr.
Sjóðurinn er í vörslu Háskólans í Reykjavík undir yfirumsjón stjórnarmanna. Stjórnarmenn skulu kappkosta að ávaxta sjóðinn á tryggan hátt og stefna að hámarks ávöxtun hverju sinni. Bókhald sjóðsins skal fært sérstaklega og fjárhagur hans aðskilinn frá annarri starfsemi. Reikningsárið er almanaksárið og skal endurskoðaður ársreikningur liggja fyrir í apríl ár hvert. Stjórn sjóðsins tilnefnir endurskoðendafélag til að endurskoða ársreikning sjóðsins. Endurskoðaður ársreikningur skal árlega fyrir lok júnímánaðar sendur Ríkisendurskoðun.
5. gr.
Aðaltekjustofn sjóðsins er vaxtatekjur. Sjóðinn má ávaxta:
1. Í ríkistryggðum skuldabréfum, bankavíxlum, öruggum skuldabréfum og hlutabréfum.
2. Hjá bönkum, sparisjóðum eða verðbréfasjóðum, sem á hverjum tíma uppfylla skilyrði gildandi laga um starfsemi slíkra stofana.
Heimilt er sjóðstjórninni að fela banka eða viðurkenndu verðbréfafyrirtæki fjárvörslu og ávöxtun sjóðsins í samræmi við skipulagsskrá þessa.
Stjórn sjóðsins er heimilt að veita viðtöku gjöfum eða öðrum framlögum til sjóðsins og skulu slík framlög leggjast við höfuðstól. Viðtaka slíkra gjafa eða framlaga má þó ekki hafa í för með sér skuldbindingar um tiltekna ráðstöfun eða annað er bindur hendur stjórnarinnar.
6. gr.
Vöxtum sjóðsins að frádregnum rekstrarkostnaði má verja til að styrkja nemendur til náms skv. 2. gr. Ekki má skerða höfuðstól sjóðsins að raungildi miðað við vísitölu neysluverðs á stofndegi.
7. gr.
Stjórn sjóðsins auglýsir eftir umsóknum um styrki tvisvar á ári, í desember og maí. Við ákvörðun um styrkveitingar hefur stjórnin til hliðsjónar námsárangur umsækjenda svo og hversu langt þeir eru komnir í námi. Að öðru jöfnu ganga þeir umsækjendur fyrir, sem komnir eru næst námslokum eða hyggja á framhaldsnám.
Einnig getur stjórnin, þegar aðstæður gefa tilefni til, haft hliðsjón af efnahag nemenda.
8. gr.
Umsækjendur sem til greina koma við styrkveitingar úr sjóðnum eru:
1. Nemendur sem lokið hafa námi og hafa fengið námsvist við menntastofnun sem veitir hærri prófgráðu í grein viðkomandi.
2. Nemendur í tæknifræði, tölvunarfræði eða verkfræði sem eiga eitt misseri eftir.
3. Nemendur sem lokið hafa sams konar hluta hliðstæðs náms, sem síðar kann að verða kennt við skólann.
4.
9. gr.
Berist ekki umsóknir sem stjórn sjóðsins telur styrkhæfar er heimilt að leggja þá upphæð sem ætluð var til styrkveitinga við höfuðstól eða ákveða að bæta henni við styrkveitingar þegar úthlutun fer næst fram.
10. gr.
Breytingar á stofnskrá þessari mega fara fram ef allir stjórnarmenn eru sammála um breytingar á henni og dómsmálaráðherra heimilar þær.
Verði breyting á skipan tæknimenntunar í landinu skal breyta úthlutunarreglum úr sjóðnum í samræmi við þær, þannig að sjóðurinn haldi ávallt tilgangi sínum, sem er að styrkja nemendur sem sýnt hafa góðan árangur í tækninámi til áframhaldandi náms.
11. gr.
Skipulagsskrá þessi tekur gildi þegar hún hefur hlotið staðfestingu dómsmálaráðherra.
12. gr.
Komi til þess að starfsemi sjóðsins leggist niður, getur stjórn hans ákveðið að leggja eigur hans til annars sjóðs, sem hafi hliðstæð markmið.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 2. júní 2006.
F. h. r.
Fanney Óskarsdóttir.
Bryndís Helgadóttir.
| B-deild - Útgáfud.: 20. júní 2006 |
Slóð að þessu skjali: http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/nrar/skipulagsskrar5022006
Til baka í allar tegundir