Nr. 876 20. nóvember 2003
REGLUR
um Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri.
1. gr.
Almennt.
Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri (HHA) er vísindaleg rannsóknastofnun sem til var stofnað með rammasamningi um samstarf milli Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) og Háskólans á Akureyri (HA) dagsettum 7. október 2002. Með samningnum vilja FSA og HA efla kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum með því að auka samstarf og gera þessa þætti í starfi stofnananna sýnilegri. Á ensku ber stofnunin heitið „Institution of Health Science Research, University of Akureyri“.
2. gr.
Hlutverk.
Meginhlutverk stofnunarinnar eru eftirfarandi:
a. að vera sameiginlegur vettvangur til rannsókna fyrir starfsmenn FSA og HA, svo og annarra heilbrigðisstofnana eftir nánara samkomulagi við þær,
b. að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í heilbrigðisvísindum sem unnar eru við HA, FSA og aðrar heilbrigðisstofnanir,
c. að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi í heilbrigðisgreinum aðstoð við rannsóknastörf eftir því sem kostur er,
d. að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaaðila á sviði heilbrigðisvísinda og sterkum tengslum við atvinnu og þjóðlíf,
e. að sinna þjónustuverkefnum í rannsóknum á heilbrigðissviði,
f. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í heilbrigðisvísindum,
g. að veita fræðslu og ráðgjöf varðandi málefni tengd heilbrigðisþjónustu,
h. að standa fyrir og stuðla að því að haldin séu málþing og ráðstefnur á sviði heilbrigðisvísinda,
i. að halda eða stuðla að því að haldin séu námskeið og fyrirlestrar.
Að öðru leyti mótar stjórn stofnunarinnar starfsemi hennar.
3. gr.
Stjórn.
Stefnunefnd HA/FSA (sbr. rammasamning) er jafnframt stjórn Heilbrigðisvísindastofnunar og er formaður stefnunefndar einnig stjórnarformaður HHA. Stefnunefndin/stjórnin velur forstöðumann hennar til þriggja ára í senn. Forstöðumaður HHA skal sitja fundi stefnunefndar þegar málefni hennar eru þar á dagskrá og þegar haldnir eru sérstakir stjórnarfundir stofnunarinnar. Forstöðumaður sér um daglegan rekstur stofnunarinnar og framfylgir stefnu og ákvörðunum stjórnar á hverjum tíma. Stjórnin mótar stefnu stofnunarinnar og setur reglur um þá þætti í starfsemi hennar sem þurfa þykir á hverjum tíma. Þá sker stjórnin úr vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.
4. gr.
Stjórnarfundir.
Stjórn Heilbrigðisvísindastofnunar skal reglulega halda sérstaka stjórnarfundi fyrir stofnunina þar sem málefni hennar skulu tekin á dagskrá. Stjórnarfundi skal að jafnaði halda einu sinni í mánuði og eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stefnunefndarmenn þess. Falli atkvæði jöfn á slíkum fundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum. Stjórnin heldur fundargerðir þar sem ákvarðanir hennar skulu skráðar. Fundargerðir skulu staðfestar í lok fundar, en eigi síðar en á næsta fundi á eftir. Heimilt er að halda stjórnarfundi með fundum stefnunefndar eða í beinu framhaldi af þeim en þá skulu dagskrárliðir aðskildir og þeir þættir sem lúta að starfsemi HHA færðir sérstaklega til bókar sem fundargerð stjórnar HHA.
5. gr.
Aðstaða.
HA og FSA láta stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað í samræmi við ákvæði samstarfssamnings milli stofnananna.
6. gr.
Ráðning starfsmanna.
Starfsmenn heilbrigðisstofnana sem uppfylla hæfisskilyrði um stöðu háskólakennara, sbr. lög um háskóla nr. 136/1997, á vettvangi fræða sem annaðhvort eru kennd við heilbrigðisdeild HA eða tengjast viðfangsefnum hennar, geta sótt um stöður við HHA. Stöðunum fylgir að lágmarki 20% vinnuskylda við heilbrigðisdeild HA sem skiptist að jafnaði þannig að 50% fer til kennslu og 50% til rannsókna. Heimilt er að semja um aðra skiptingu á hlutfalli kennslu og rannsókna. Um umbun fyrir þetta vinnuframlag er samið sérstaklega við þá stofnun þar sem umsækjandi er í aðalstarfi. Stefnunefnd ákveður hversu margar stöður eru heimilar við HHA á hverjum tíma. Stöðurnar veitast til þriggja ára í senn. Rektor ræður í stöður við HHA að fengnu áliti dómnefndar HA, heilbrigðisdeildar HA og stefnunefndar. Stöðurnar eru auglýstar á innra neti viðkomandi stofnana.
Dómnefnd HA metur hæfi umsækjenda um stöður við Heilbrigðisvísindastofnun samkvæmt þeim reglum sem gilda um ráðningu í stöður við HA (3. gr. laga um Háskólann á Akureyri nr. 40/1999). Dómnefndin ákveður hæfi umsækjenda til þess að gegna stöðu lektors, dósents eða prófessors. Sá sem hlýtur slíkan hæfisdóm skal njóta sambærilegra réttinda og gegna sambærilegum skyldum og lektorar, dósentar og prófessorar eftir því sem við á, þótt þeir séu ráðnir í aðalstarf við aðra stofnun, enda sé slíkt í samræmi við lög, reglugerðir og kjarasamninga (sbr. 8. gr. reglna fyrir HA frá 3. desember 1999). Um framgang gilda sömu reglur fyrir þessar stöður og gilda um kennara HA. Að öðru leyti taka réttindi og skyldur mið af gildandi kjarasamningi viðkomandi starfsmanns og reglna Háskólans á Akureyri.
7. gr.
Rannsóknir við Heilbrigðisvísindastofnun.
Rannsóknir við Heilbrigðisvísindastofnun eru vistaðar við heilbrigðisdeild HA. Birting vísindagreina eða annars afraksturs rannsóknanna, s.s. kynningar rannsóknaverkefna og útdrátta á ráðstefnum eða í fjölmiðlum, skal, auk þess að vera í nafni viðkomandi vísindamanns, einnig vera í nafni Háskólans á Akureyri og FSA. Heilbrigðisvísindastofnun heldur árlega kynningu á rannsóknaverkefnum sem unnin eru við stofnunina.
Í upphafi hvers árs skulu þeir sem ráðnir eru að Heilbrigðisvísindastofnun gera rannsóknasviði HA grein fyrir áætlunum sínum varðandi rannsóknir og gefa skriflega skýrslu um rannsóknir liðins árs.
8. gr.
Fjármál, fjárhagsáætlun, reikningsár, ársreikningur o.fl.
Tekjur HHA geta verið eftirfarandi:
a. styrkir til einstakra verkefna
b. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi
c. tekjur af útgáfustarfsemi
e. aðrar tekjur, t.d. gjafir
Við stofnunina er heimilt að starfrækja rannsóknasjóð. Um hann gilda reglur sem stjórn stofnunarinnar (stefnunefnd) setur.
Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskólans á Akureyri. Stjórnin ber fjárhagslega ábyrgð á HHA. Hún samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun hvers árs fyrir upphaf nýs starfsárs. Samningar um þjónusturannsóknir þurfa samþykki stjórnar.
Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.
9. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar sem stefnunefnd HA hefur sett öðlast gildi með samþykkt háskólaráðs á grundvelli heimildar í 15. gr. laga nr. 40/1999 um Háskólann á Akureyri.
Þannig samþykkt af háskólaráði þann 20. júní 2003.
Háskólanum á Akureyri, 20. nóvember 2003.
Þorsteinn Gunnarsson rektor.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir,
varaforseti háskólaráðs.
Slóð að þessu skjali: http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/nrar/reglur8762003