Nr. 594 25. júlí 2003
REGLUR
um barnamenningarsjóð.
1. gr.
Barnamenningarsjóði er ætlað að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
2. gr.
Barnamenningarsjóður heyrir undir menntamálaráðuneytið og eru tekjur hans:
1. Árlegt framlag sem Alþingi ákveður í fjárlögum.
2. Aðrar tekjur er sjóðnum kunna að hlotnast.
3. gr.
Menntamálaráðherra skipar sjóðnum fimm manna stjórn til tveggja ára í senn. Skal einn stjórnarmanna skipaður að fenginni tilnefningu Kennarasambands Íslands, einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra listamanna, einn samkvæmt tilnefningu Æskulýðsráðs ríkisins og tveir skipaðir af ráðherra án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
4. gr.
Heimilt er að veita styrki úr sjóðnum til einstaklinga, félaga og stofnana. Sjóðstjórn auglýsir eftir umsóknum og úthlutar úr sjóðnum að minnsta kosti einu sinni á ári. Umsóknir skulu gerðar á eyðublöð sjóðsins. Styrkþegar skulu gera grein fyrir ráðstöfun styrkfjárins innan árs frá móttöku þess. Heimilt er stjórn sjóðsins að ákveða að tiltekin verkefni hafi forgang við úthlutun styrkja enda sé þess getið í auglýsingum.
5. gr.
Heimilt er að veita styrki til námskeiða- og ráðstefnuhalds ef viðfangsefni þeirra rúmast innan meginmarkmiða sjóðsins. Stjórn sjóðsins er heimilt að standa fyrir námskeiðum, ráðstefnum og kynningarstarfsemi og skal kostnaður þá greiddur úr sjóðnum.
6. gr.
Reglur þessar öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur um barnamenningarsjóð nr. 246/1994.
Menntamálaráðuneytinu, 25. júlí 2003.
Tómas Ingi Olrich.
Guðmundur Árnason.
Til baka í allar tegundir