Reglugerð
um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara nr. 695 1998
1. gr.
Útgáfa leyfisbréfa.
Rétt til að nota starfsheitið grunnskólakennari og til að starfa sem slíkur
hér á landi við grunnskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða
skóla, sbr. lög nr. 66/1995 um grunnskóla, hefur sá einn sem til þess hefur
leyfi menntamálaráðherra.
Menntamálaráðherra gefur út leyfisbréf handa grunnskólakennurum samkvæmt
lögum nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum
grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.
Umsóknir um leyfisbréf skulu sendar menntamálaráðuneytinu á þar til gerðum
eyðublöðum.
2. gr.
Skilyrði fyrir útgáfu leyfisbréfs.
Umsækjandi sem uppfyllir skilyrði 2. gr. laga nr. 86/1998 á rétt á að nota
starfsheitið grunnskólakennari og starfa sem slíkur í grunnskólum hér á
landi.
Umsækjandi um leyfi til þess að nota starfsheitið grunnskólakennari skal
leggja fram, ásamt umsókn, skírteini um lokapróf, yfirlit yfir námsferil og
auk þess lýsingu á einstökum námsáföngum sem hann hefur lokið sé þess
óskað. Umsækjandi skal leggja fram próf- og námsgögn frá erlendum skólum ef
um slík próf er að ræða og löggilta þýðingu á prófgögnum ef fram á það er
farið.
Heimilt er að meta kennslureynslu sem 15 eininga hluta af kennslufræði til
kennsluréttinda enda hafi viðkomandi að lágmarki fimm ára kennslureynslu
með góðum árangri að mati viðkomandi skólastjóra samkvæmt skriflegri umsögn
hans.
3. gr.
Matsnefnd.
Leiki vafi á hvort umsækjandi um leyfi til að nota starfsheitið
grunnskólakennari uppfylli skilyrði 2. gr. laga nr. 86/1998 og ákvæði
þessarar reglugerðar, skal leita umsagnar matsnefndar samkvæmt 4. gr. laga
nr. 86/1998.
Nefndin metur umsóknir með hliðsjón af kröfum laga og reglugerða um menntun
og starfsreynslu grunnskólakennara.
Nám umsækjanda skal metið í námseiningum þar sem hver eining jafngildir
námsvinnu einnar viku.
Telji nefndin að umsækjandi uppfylli ekki skilyrði laga og reglugerða skal
hún tilgreina hvað á vantar.
Matsnefndin er ráðgefandi og skilar rökstuddri umsögn til menntamálaráðherra.
4. gr.
Ýmis ákvæði.
Menntamálaráðherra skal staðfesta leyfi til að nota starfsheitið
grunnskólakennari samkvæmt umsókn ríkisborgara frá ríki innan Evrópska
efnahagssvæðisins ef viðkomandi leggur fram vottorð um viðurkennd
kennsluréttindi í ríki innan svæðisins í samræmi við skilyrði tilskipunar
nr. 89/48/EBE, sbr. lög nr. 83/1993, um viðurkenningu á menntun og
prófskírteinum, með áorðnum breytingum.
Skólastjórar skulu, eftir því sem kostur er, sjá til þess að
grunnskólakennarar í 8.-10. bekk kenni þær greinar sem þeir hafa sérhæft
sig í.
Um gjaldtöku vegna útgáfu leyfisbréfa samkvæmt reglugerð þessari fer
samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs.
5. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum í 2., 4. og 5. gr. laga nr.
86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara,
framhaldsskólakennara og skólastjóra og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 27. nóvember 1998.
Björn Bjarnason.
Til baka í allar tegundir