Reglugerð
um skólaráð við framhaldsskóla
nr. 140/1997
1. gr.
Skólaráð starfa við
framhaldsskóla. Kosið skal til skólaráðs
við upphaf hvers skólaárs. Í ráðinu
sitja tveir fulltrúar kennara, kjörnir á fyrsta
almenna kennarafundi skólaársins. Nemendaráð
kýs tvo fulltrúa í skólaráð.
Aðstoðarskólameistari og áfangastjóri
sitja í skólaráði. Starfi öldungadeild
við framhaldsskóla skulu fulltrúar nemenda við
þær sitja fundi skólaráðs þegar
málefni þeirra eru á dagskrá. Skólameistari
er oddviti skólaráðs og stýrir fundum
þess.
Beri engir starfsmenn framhaldsskóla
starfsheitið aðstoðarskólameistari eða
áfangastjóri taka þeir sem gegna sambærilegum
störfum sæti í skólaráði.
2. gr.
Skólaráð:
- er skólameistara til aðstoðar
og ráðgjafar um stjórn skólans,
- fjallar um starfsáætlun skólans
og framkvæmd hennar,
- fjallar um skólareglur, umgengnishætti
í skólanum, vinnu- og félagsaðstöðu
nemenda,
- veitir umsögn um erindi frá
skólanefnd, almennum kennarafundi, nemendaráði,
einstaklingum, skólameistara og menntamálaráðuneytinu
sé þess óskað,
- fjallar um mál sem varða einstaka
nemendur. Með slík mál skal farið sem trúnaðarmál.
3.
gr.
Skólaráð getur vísað
erindum sem það hefur fjallað um, ásamt umsögn,
til skólanefndar, kennarafundar eða nemendaráðs.
Rísi ágreiningur í skólaráði
skal leitast við að jafna hann og reyna að ná
niðurstöðu án þess að greiða
þurfi atkvæði. Komi til atkvæðagreiðslu
um mál ræður afl atkvæða. Falli atkvæði
jöfn ræður atkvæði skólameistara.
4.
gr.
Skólaráð starfar á
starfstíma skóla, en heimilt er að kalla það
saman á öðrum tíma beri brýna nauðsyn
til. Skólameistari boðar til funda. Skylt er að
kalla saman fund ef tveir eða fleiri skólaráðsmenn
óska þess.
Halda skal gerðabók um skólaráðsfundi
og skulu fundargerðir liggja frammi í skólanum.
5.
gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
heimild í 8. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla
og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu,
7.
febrúar 1997.