Auglýsing
um erindisbréf skólameistara í framhaldsskólum
Með vísan til 38. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hefur menntamálaráðherra hinn 1. júlí sl. sett skólameisturum eftirtalinna framhaldsskóla erindisbréf:
Menntaskólans í Reykjavík, Kvennaskólans í Reykjavík, Iðnskólans í Reykjavík, Menntaskólans við Sund, Menntaskólans við Hamrahlíð, Stýrimannaskólans í Reykjavík, Vélskóla Íslands, Fjölbrautaskólans við Ármúla, Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Borgarholtsskóla, Menntaskólans í Kópavogi, Fjölbrautaskólans í Garðabæ, Flensborgarskólans í Hafnarfirði, Iðnskólans í Hafnarfirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi, Framhaldsskóla Vestfjarða, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, Menntaskólans á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Framhaldsskólans á Húsavík, Framhaldsskólans á Laugum, Menntaskólans á Egilstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands, Framhaldsskóla Austur- Skaftafellssýslu, Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, Menntaskólans að Laugarvatni, Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, Framhaldsskólans í Skógum, Hússtjórnarskólans í Reykjavík og Hússtjórnarskólans á Hallormsstað.
Erindisbréf skólameistara framhaldsskóla eru efnislega samhljóða að breyttu breytanda og birtist sýnishorn erindisbréfs skólameistara sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 4. júlí 1997
F.h.r.
Fylgiskjal
Erindisbréf
fyrir skólameistara Iðnskólans í Reykjavík
samkvæmt 38. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
1. gr.
Iðnskólinn í Reykjavík starfar samkvæmt lögum nr. 80/1996 um framhaldsskóla og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra laga svo og aðalnámskrá framhaldsskóla.
Skólameistari Iðnskólans í Reykjavík er ábyrgur gagnvart menntamálaráðherra fyrir rekstri og starfsemi skólans. Honum ber að framfylgja lögum og reglugerðum, sem um skólann gilda, stjórnvaldsfyrirmælum og kjarasamningum á hverjum tíma og stýra starfi hans í samræmi við erindisbréf þetta svo og gildandi samning milli skólans og menntamálaráðuneytisins.
Skólameistara ber einnig að gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og upplýsingalaga nr. 50/1996, svo og annarra laga og reglugerða sem snerta kunna embættið eða einstök verkefni skólans.
2. gr.
Skólameistari Iðnskólans í Reykjavík veitir skólanum forstöðu og stýrir starfi hans í samræmi við erindisbréf þetta. Hann ber ábyrgð á faglegu starfi skólans, öllum rekstri og fjárreiðum. Skólameistari skipar störfum starfsliðs eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð sem sett er á grundvelli 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996.
Skólameistari er framkvæmdastjóri skólanefndar og situr fundi hennar. Hann er einnig oddviti skólaráðs og situr lögum samkvæmt í samstarfsnefnd framhaldsskóla.
3. gr.
Meginmarkmið og helstu verkefni Iðnskólans í Reykjavík eru tilgreind í lögum og reglugerðum um framhaldsskóla svo og aðalnámskrá framhaldsskóla og skólanámskrá Iðnskólans í Reykjavík. Skólameistara er falin ábyrgð á að unnið sé að þeim.
Skólameistari vinnur með skólanefnd að stefnumótun og gerð starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir skólann til þriggja ára í senn þar sem meginmarkmið og verkefni skólans eru nánar skilgreind. Áætlunina skal endurskoða árlega. Skólameistara ber að öðru leyti að starfa samkvæmt stefnu menntamálaráðherra hverju sinni í skólamálum og fyrirmælum menntamálaráðuneytisins á hverjum tíma.
4. gr.
Skólameistari ber ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma skólans sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir skólans séu nýttir á árangursríkan hátt, sbr. 38. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hann vinnur með skólanefnd að gerð árlegrar starfs- og fjárhagsáætlunar vegna undirbúnings fjárlaga. Henni skal fylgja greinar-gerð um hvernig starfsmarkmiðum skólans, sbr. einnig 3. gr., verði náð svo og ársskýrsla liðins árs með greinargerð um starfsemi skólans það ár.
5. gr.
Skólameistari ræður starfsfólk skólans að höfðu samráði við skólanefnd, gerir við það ráðningarsamning og hefur yfirumsjón með framkvæmd þeirra í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríksins og gildandi kjarasamninga og reglugerð sem sett er á grundvelli 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996.
Skólameistari skal í samvinnu við starfsfólk kosta kapps um að tilhögun skólastarfsins og verkaskipting innan skólans stuðli að skilvirkni og hagkvæmni.
Skólameistari hefur yfirumsjón með húsakynnum skólans, búnaði og öðrum eigum hans.
6. gr.
Erindisbréf þetta, sem sett er samkvæmt 38. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og með skírskotun til laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla, öðlast þegar gildi og gildir þar til annað verður ákveðið af menntamálaráðherra. Skólameistari getur óskað eftir endurskoðun þessa erindisbréfs.
Menntamálaráðuneytið
1. júlí 1997
Björn Bjarnason/
Guðríður Sigurðardóttir
Slóð að þessu skjali: http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/nrar/erindisbref4531997
Til baka í allar tegundir