Samþykkt 29. nóvember 2007
með samstarfssamningi milli
Íslands, Færeyja og Grænlands
um menningu, menntamál og rannsóknir
Við, ráðherrar á sviði menningar, menntamála og rannsókna, í hinum þremur vestnorrænu löndum, staðfestum með þessari samþykkt með samstarfssamningi frá 26. nóvember 2003, að samstarfssamningurinn sem tekur gildi 1. janúar 2008 framlengist óbreyttur, þó með þeirri breytingu að samningurinn verði án tímatakmarkana.
Á sama tíma staðfestum við fyrri ákvörðun okkar um að áherslusvið ársins 2006 framlengist til ársins 2007 og höfum þess utan samþykkt að áherslusvið áranna 2008-2010 verði þau sem lýst er í fylgiskjali 1.
Samþykktin með samningnum er gerð fyrir hönd ríkisstjórnanna í löndunum þremur af ráðherrum menningar-, mennta- og rannsóknarmála.
Samþykktin með samningnum er gerð með fyrirvara um samþykki fjárveitingavaldsins í löndunum þremur í árlegum fjárlögum hvers lands fyrir sig.
Hafnarfjörður, þann 29/11 2007
_____________________________
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Island
______________________
Jógvan á Lakjuni
Færøerne
___________________
Tommy Marø
Grønland
Fylgiskjal með samþykkt þann 29/11-2007
með samstarfssamningi milli Íslands, Færeyja og Grænlands um menningu, menntun og rannsóknir
ÁHERSLUSVIÐ
2008-2010
2008:
Áherslusvið: Handverk og hönnun
Markmið: Markmið þessa áherslusviðs er að undirstrika þýðingu handverks og hönnunar sem jafn þýðingarmikið svið og aðrar listir og að skapa þessum listformum fastan sess innan listasviðsins. Handverk og hönnun eru mikilvæg atvinnulífinu, menningartengdri ferðaþjónustu og ekki síst hinni listrænu þróun í vestnorrænu löndunum.
Í hinum vestnorrænu löndum eru skýr tengsl milli hefðar og nýsköpunar. Handverk og hönnun stendur föstum fótum í menningararfinum, en þangað sækja ungir listamenn innblástur og hugmyndir. Það er nauðsynlegt að styrkja þekkingu og vitneskju innan þessara greina til að tryggja gæði og afkomu þeirra.
Líta ber á vestnorrænt handverk og hönnun í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samhengi.
Markhópur: Hönnuðir og handverksfólk, sérstaklega af yngri kynslóðinni.
Starfsemi: Námskeið, sýningar, málþing.
Ábyrgðaraðili: ÍSLAND
2009:
Áherslusvið: Menntun fyrir sjálfbæra þróun.
- óformlegar menntunarleiðir
Markmið: Nýting auðlinda landsins, jafnt lifandi auðlinda sem hráefnis, verður að gerast á sjálfbærum grundvelli, bæði með tilliti til þjóðarinnar, alþjóðasamfélagsins og álit þess. Samtímis byggist sjálfbært samfélag einnig á virðingu fyrir menningu og menningararfi þjóðarinnar.
Sjálfbær þróun kemur ekki af sjálfu sér – þjóðin verður að fræðast og fræða. Þetta má gera bæði með formlegum hætti í skólum og menntastofnunum og á óformlegan hátt með útbreiðslu þekkingar, leiklist, bókmenntum, viðburðum o.s.frv.
Markmið áherslusviðsins er að löndin þrjú skiptist á reynslu um vinnu tengda fræðslu um sjálfbæra þróun, með áherslu á óformlega menntunarmöguleika, það er að segja þá menntun sem fæst utan hins eiginlega skólakerfis. Það getur verið í formi verkefna fyrir börn og ungmenni sem fjalla um sjálfbæra þróun – til dæmis A-21 verkefnið í Narsaq – en getur einnig verið á annan hátt.
Með því að deila reynslu sinni, geta þjóðirnar bætt við sig fleiri hagnýtum verkefnum í löndunum þremur og samtímis getur það verið framlag til áætlunar um menntun á sviði sjálfbærrar þróunar og þar með virkt framlag til að minnast 10 ára afmælis Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Markhópur: Aðalmarkhópurinn eru börn og ungmenni.
Starfsemi: 1) Málþing skipst á reynslu, innlegg frá löndunum þremur um reynsluna af menntun um sjálfbæra þróun með áherslu á óformlegar menntunarleiðir.
2) Samvinna á staðnum um sérstök verkefni á sviði sjálfbærrar þróunar.
3) Miðlun varðandi áherslusviðið og undirbúningur svipaðs átaks annars staðar.
Ábyrgðaraðili: GRÆNLAND
2010:
Áherslusvið Sumarnámskeið fyrir ungt fólk í Útnorðri
Markmið Aðalmarkmið verkefnisins er:
að gera hópi ungmenna frá Grænlandi, Íslandi og Færeyjum kleift að kynnast hvert öðru og færa þeim meiri þekkingu á löndum hvers annars,
að búa til tengslanet milli ungmenna í Útnorðri
að skapa skilning á þýðingu samstarfs milli landanna í Útnorðri á öllum stigum,
að veita þátttakendunum spennandi lífsreynslu
Markhópur Ungt fólk
Starfsemi Efnt verði til þriggja mismunandi sumarháskólanámskeiða, sem haldin verða samtímis í löndunum þrem. Námskeiðin er hægt að endurtaka t.d. þriðja hvert ár.
Kennslunni verði þannig háttað að lögð verður sérstök áhersla á námsgreinar sem tengjast eftirfarandi: tungumál, menning, saga, lýðfræði, atvinnulífi, þjóðhagfræði, umhverfi og auðlindir ásamt sameiginlegri sögu vestnorrænu landanna í tengslum við Norðurlönd og Evrópu.
Námskeiðin ættu að standa í tvær til þrjár vikur og kostnað af þeim ætti að greiða af því fjármagni, sem lagt er til menningarsamningsins í hverju landi fyrir sig. Lýðháskólum eða öðrum stofnunum, sem hafa burði til að taka verkefnið að sér, verði falið að annast framkvæmd þeirra.
Ábyrgðaraðili: FÆREYJAR
Til baka í allar tegundir