Reglugerđ
um íslenskukennslu nemenda međ annađ móđurmál en íslensku
nr. 391/1996
1. gr.
Nemendur í grunnskóla er hafa annađ móđurmál en íslensku og hafa fasta búsetu hér á landi, eiga rétt á sérstakri kennslu í íslensku.
2. gr.
Markmiđ kennslunnar er ađ gera nemendur fćra ađ skilja og nota íslenskt mál, stunda nám í íslenskum grunnskólum og taka ţátt í íslensku samfélagi.
Menntamálaráđherra setur náminu markmiđ í ađalnámskrá grunnskóla og hefur eftirlit međ framkvćmd ţess, sbr. 9. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995.
3. gr.
Skólanefnd ţess skóla er nemandi stundar nám viđ skal sjá til ţess ađ hann fái ţá kennslu í íslensku sem skólastjóri og sérfrćđiţjónusta skóla telur ţörf á međan nemandi stundar ţar nám.
4. gr.
Miđa skal viđ ađ hver nemandi međ annađ móđurmál en íslensku fái 2 stundir á viku í sérstakri íslenskukennslu á međan hann er ađ ná tökum á íslensku máli. Samkvćmt mati skólastjóra og sérfrćđiţjónustu skóla getur kennslan veriđ mismunandi eftir skyldleika móđurmáls nemanda viđ íslensku.
5. gr.
Í skólum ţar sem ţví verđur viđ komiđ og međ samţykki viđkomandi sveitarstjórnar, skulu nemendur međ annađ móđurmál en íslensku fá kennslu í og á eigin móđurmáli í samráđi viđ forráđamenn. Međ kennslunni skal stefnt ađ virku tvítyngi ţessara nemenda. Nemendur skulu hvattir til ađ halda móđurmáli sínu viđ og rćkta ţađ.
6. gr.
Heimilt er ađ veita ţessum nemendum undanţágu frá ţví ađ ţreyta samrćmt lokapróf í íslensku og leggja fyrir ţá sérstakt lokapróf í íslensku.
7. gr.
Um heildarfjölda kennslustunda nemenda međ annađ móđurmál en íslensku gilda sömu reglur og um ađra nemendur.
8. gr.
Reglugerđ ţessi er sett samkvćmt 36. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 og öđlast gildi 1. ágúst 1996.
Menntamálaráđuneytinu, 4. júní 1996.
Björn Bjarnason
Árni Gunnarsson
Slóđ ađ ţessu skjali: http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/nrar/reglugerdir3911996
Til baka í allar tegundir