Reglur um úthlutun styrkja til útgáfu og gerðar námsefnis handa framhaldsskólum

 

  1. Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til útgáfu og gerðar námsefnis í framhaldsskólum. Hlutverk þessara styrkja er að auka framboð á námsefni á íslensku handa framhaldsskólum og auka gæði námsefnis.

  2. Menntamálaráðherra skipar sex manna nefnd (Námsefnisnefnd) til tveggja ára í senn. Nefndin skal skipuð einum fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu og er hann formaður nefndarinnar, einum frá Hinu íslenska kennarafélagi, einum frá Sambandi iðnmennta–skóla, einum frá Félagi íslenskra bókaútgefanda, einum frá Skólameistarafélagi Íslands og einum frá Kennarasambandi Íslands.

  3. Auglýsa skal eftir umsóknum í október ár hvert og skal umsóknarfrestur vera í þrjár vikur minnst. Um styrk geta sótt einstaklingar, samstarfshópar eða fyrirtæki sem geta staðfest hæfni sína til viðkomandi verks. Styrkir eru einungis veittir til verkefna sem vinna er hafin við eða ítarleg áætlun liggur fyrir um.

  4. Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu á þar til gerðum eyðublöðum. Í umsókn skal vera nákvæm lýsing á verkefninu, grundað mat á þörf fyrir efnið og hverjum það er ætlað ásamt sundurliðaðri áætlun um framvindu verksins, vinnu–stundafjölda og kostnað. Ef styrkurinn nemur meira en 500 þúsund krónum skal umsækjandi gera grein fyrir öðrum fyrirhuguðum störfum á styrktímabili. Þannig ber umsækjanda að sýna fram á að hann muni hafa tíma og aðstöðu til að vinna verkið sem styrkja skal.

  5. Umsækjandi skal leggja fram gögn eða meðmæli um hæfni hans til að vinna verkið.

  6. Námsefnisnefnd fer yfir allar umsóknir og metur þær. Hún leitar umsagna aðila sem þekkingu hafa á viðkomandi efni/sviði svo sem fagfélaga kennara. Úthlutun fer fram einu sinni á ári og skal henni lokið fyrir 15. mars.

  7. Námsefnisnefnd er heimilt að auglýsa eftir umsóknum á tilteknu sviði. Heimilt er að verja allt að fimmtungi heildarúthlutunar til að efla tiltekin svið á þennan hátt.

  8. Styrkþegar skulu senda Námsefnisnefnd skilagrein þar sem gerð er grein fyrir hvernig styrkurinn var notaður. Skilagreininni á að fylgja t.d. eintak af verkinu sem styrkt var, útgefinni bók eða handrit á vinnslustigi.

  9. Nefndin setur sér nánari úthlutunar- og starfsreglur.

     





Til baka í allar tegundir