Nr. 18 2. janúar 2002
REGLUR nr. 18/2002
raunvísindadeildar Háskóla Íslands um veitingu starfa.
1. gr.
Almennt.
Reglur þessar gilda þegar gerð er tillaga til háskólarektors um veitingu starfs sem auglýst hefur verið við raunvísindadeild háskólans eða stofnanir sem heyra undir deildina, og þar sem hæfnisdóms er krafist.
Í auglýsingum um störf sem reglur þessar taka til, skal hafa komið fram við hverja af skorum eða stofnunum raunvísindadeildar starfið sé. Það er skilyrði að í auglýsingu komi fram hvaða reglur gildi um tillögugerð varðandi veitingu starfsins.
2. gr.
Dómnefndarálit og gögn umsækjenda.
Þegar dómnefnd hefur lokið við að meta umsækjendur um auglýst starf sendir rektor dómnefndarálitið til forseta raunvísindadeildar, ásamt athugasemdum umsækjenda og öðrum gögnum. Deildarforseti framsendir málið til viðkomandi skorarformanns eða stjórnarformanns stofnunar.
3. gr.
Málsmeðferð skorar.
Skorarformaður sendir þegar niðurstöður dómnefndar og gögn umsækjenda til allra atkvæðisbærra manna á skorarfundi. Skal málið tekið fyrir á skorarfundi svo fljótt sem því verður við komið.
Skorarformaður leggur rökstudda tillögu fyrir skorarfund um það með hverjum skuli mælt í starfið. Komi fram aðrar tillögur skulu þær einnig rökstuddar. Hafi dómnefnd verið beðin um að forgangsraða umsækjendum skal það sérstaklega rökstutt ef gerð er tillaga um annan umsækjanda en þann sem metinn hefur verið hæfastur af dómnefnd. Hljóti engin tillaga hreinan meirihluta í fyrstu umferð skal greiða atkvæði um þær tvær tillögur sem flest atkvæði hlutu. Tillaga skorar um það hver skuli ráðinn skal hafa hlotið hreinan meirihluta greiddra atkvæða á skorarfundi.
Skorarfundur er ályktunarbær um veitingu starfs ef þrír fjórðu hlutar atkvæðisbærra skorarmanna sækja fund. Um atkvæðagreiðslu og niðurstöðu mála gilda ákvæði sameigin-legra reglna fyrir Háskóla Íslands og samþykktir deildarfundar eftir atvikum.
4. gr.
Málsmeðferð stofnunar.
Formaður stjórnar stofnunar sendir þegar niðurstöður dómnefndar og gögn umsækjenda til þeirra sem sæti eiga á stofufundi. Skal málið tekið fyrir á stofufundi svo fljótt sem því verður við komið.
Stofustjóri leggur rökstudda tillögu fyrir stofufund um það með hverjum skuli mælt í starfið. Komi fram aðrar tillögur skulu þær einnig rökstuddar. Hafi dómnefnd verið beðin um að forgangsraða umsækjendum skal það sérstaklega rökstutt ef gerð er tillaga um annan umsækjanda en þann sem metinn hefur verið hæfastur af dómnefnd. Hljóti engin tillaga hreinan meirihluta í fyrstu umferð skal greiða atkvæði um þær tvær tillögur sem flest atkvæði hlutu. Tillaga stofu um það hver skuli ráðinn skal hafa hlotið hreinan meirihluta greiddra atkvæða á stofufundi.
Stofufundur er ályktunarbær um veitingu starfs ef þrír fjórðu hlutar atkvæðisbærra stofumanna sækja fund.
Að fenginni umfjöllun stofufundar um umsækjendur skal tillaga stofu tekin fyrir í stjórn stofnunarinnar. Komi fram aðrar tillögur skulu þær rökstuddar.
Óski þrír eða fleiri stjórnarmenn þess, skal bera tillögur um ráðningu í starfið undir stofnunarfund áður en ákvörðun er tekin.
Þar sem stofnun er ekki skipt í stofur fjallar stofnunarfundur um málið með sama hætti og stofufundur. Formaður stjórnar stofnunar leggur þá rökstudda tillögu fyrir stofnunarfund og stjórnarfund um það með hverjum skuli mælt í starfið.
Um atkvæðagreiðslu og niðurstöðu mála á stjórnarfundi gilda ákvæði sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands og reglna um viðkomandi stofnun eftir því sem við á.
5. gr.
Meðferð deildar á tillögum skora og stofnana.
Deildarforseti kynnir niðurstöðu skorar í deildarráði. Deildarráð getur gert athugasemdir við málsmeðferð og farið fram á að skor taki málið fyrir að nýju sé rökstudd ástæða til að ætla, að réttra málsmeðferðarreglna hafi ekki verið gætt. Tekur þá skor að nýju við málinu.
Að fengnum athugasemdum deildarráðs sendir deildarforseti endanlega og rökstudda tillögu um ráðningu í starfið til rektors sbr. 45. gr. sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 458/2000. Jafnframt og um leið skal deildarforseti kynna atkvæðisbærum fulltrúum á deildarfundi hver niðurstaðan var.
Deildarforseti framsendir tillögu stjórnar stofnunar ásamt rökstuðningi til rektors sbr. 45. gr. sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 458/2000.
6. gr.
Meðferð rektors á tillögum.
Rektor getur óskað eftir frekari upplýsingum frá raunvísindadeild um tillögugerðina. Sé rökstudd ástæða til þess að ætla að réttra málsmeðferðarreglna eða lögbundinna sjónarmiða hafi ekki verið gætt við tillögugerðina, getur rektor vísað málinu á ný til deildar.
7. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglur þessar sem samþykktar hafa verið af deildarfundi í raunvísindadeild og hlotið staðfestingu háskólaráðs eru settar á grundvelli heimildar í 5. mgr. 12. gr. laga nr. 41/1999 um Háskóla Íslands, sbr. og 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í þeim lögum, og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 2. janúar 2002.
Páll Skúlason.