Menntamálaráðuneytið, Menntafélag byggingariðnaðarins og sveinsprófsnefndir í bygginga- og mannvirkjagreinum gera með sér svofelldan samning vegna umsýslu sveinsprófa og námssamninga í bygginga- og mannvirkjagreinum.


I. KAFLI
Gildissvið.

1. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins tekur að sér í umboði menntamálaráðuneytisins og sveinsprófsnefnda umsýslu sveinsprófa og eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í bygginga- og mannvirkjagreinum samkvæmt samningi þessum með vísan til 24. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla, reglugerðar nr. 278/1997 um sveinspróf og reglugerðar nr. 280/1997 um námssamninga og starfsþjálfun, sbr. fylgiskjal 1 og 2.

II. KAFLI
Umsýsla sveinsprófa.

2. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins annast framkvæmd sveinsprófa í bygginga- og mannvirkjagreinum sbr. 12. gr. reglugerðar 278/1997 um sveinspróf. Þessar greinar eru: húsasmíði, húsgagnabólstrun, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulagnir og veggfóðrun.

3. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins tekur að sér sem verktaki að kynna skipulag og framkvæmd sveinsprófa meðal fulltrúa atvinnulífs og skóla, kennara og nemenda.

4. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins skal sjá um að kaupa og viðhalda prófabanka vegna sveinsprófa. Stofnkostnaður vegna þessa liðar er ekki innifalinn í einingaverði vegna sveinsprófa skv. 16. gr. Semja skal sérstaklega um kaup á prófabanka.

5. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins tekur að sér að sjá um auglýsingar vegna sveinsprófa, innritar í þau, fer yfir umsóknir og heimilar próftöku að uppfylltum skilyrðum sem ráðuneytið setur.


6. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins sér sveinsprófsnefnd fyrir vinnuaðstöðu og starfsmanni.


III. KAFLI
Námssamningar.

7. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins sér um skráningu námssamninga í bygginga- og mannvirkjagreinum og annast eftirlit með þeim.

8. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins leiðbeinir um gerð starfsþjálfunar- og iðnnáms-samninga í bygginga- og mannvirkjagreinum og staðfestir slíka samninga. Upplýsingar úr nemaskrá eru sendar til menntamálaráðuneytis á tölvutæku formi, þar sem fram kemur nafn iðnnema, nafn meistara og fyrirtækis, gildistími samnings og áætluð námslok, auk nafns skóla þar sem nemi fyrirhugar að stunda skólanámið.

9. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins veitir hlutaðeigandi upplýsingar um framkvæmd samninganna, þ.m.t. um réttindi og skyldur samningsaðila.

10. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins hefur milligöngu um útvegun starfsþjálfunarpláss fyrir nema er stunda iðnnám á verknámsbrautum iðnfræðsluskóla.

11. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins aðstoðar við lausn ágreiningsmála er upp kunna að koma milli samningsaðila ef ekki næst samkomulag um lausn, ógildir námssamninga ef það reynist óhjákvæmilegt og kemur upplýsingum þar um til menntamála-ráðuneytis. Menntafélag byggingariðnaðarins skal sjá um að á hennar vegum starfi kærunefnd er fjalli um ágreining vegna meintra námssamningsbrota og sker úr um hann. Í nefndinni sitji einn fulltrúi Samtaka iðnaðarins, einn frá Samiðn og einn frá INSÍ. Sé aðili ósáttur við afgreiðslu á máli sínu getur hann vísað því til úrskurðar menntamálaráðuneytis.


12. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins fylgist með því að nemar á námssamningi sem lokið hafa tilskildu námi í skóla og atvinnulífi skili sér til sveinsprófs.
IV. KAFLI
Framkvæmd og skil.

13. gr.
Forstöðumenn Menntafélags byggingariðnaðarins stjórna verkefnum samkvæmt samningi þessum í samvinnu við starfsgreinaráð bygginga- og mannvirkjagreina og sveinsprófsnefndir. Þeir skulu gefa menntamálaráðuneytinu yfirlit um framgang verkefna þeirra sem kveðið er á um í samningnum eigi sjaldnar en einu sinni á ári.

14. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins leggur til húsnæði og aðstöðu fyrir þá starfsmenn sem starfa samkvæmt samningi þessum. Menntafélagið ber kostnað við stjórnun verkefna og kynningu á þeim til viðkomandi aðila og fagfélaga.

15. gr.
Sveinsprófsnefnd gefur menntamálaráðuneytinu skýrslu um sveinspróf á frumriti sveinsprófabókar og sér um afhendingu sveinsbréfa að hætti iðnarinnar.

V. KAFLI
Fjármál.

16. gr.
Menntamálaráðuneytið greiðir Menntafélagi byggingariðnaðarins kr. 31.000 fyrir hvern nemanda er þreytir sveinspróf. Þá greiðir menntamálaráðuneytið kr. 7.500 fyrir hvern náms- og starfsþjálfunarsamning sem gerður er á vegum Menntafélagsins. Greiðslur taka breytingum í samræmi við launaþróun á hverjum tíma eins og hún er framreiknuð í fjárlögum hverju sinni. Launaþróun skal skoðuð tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí.

17. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins greiðir allan kostnað vegna verkefna sem getið er um í samningnum, þar með talið laun sveinsprófsnefndar og annan kostnað við prófahald sem próftakar greiða ekki. Að höfðu samráði við Menntafélag byggingariðnaðarins skilar formaður sveinsprófsnefndar sundurliðuðum reikningi vegna vinnu prófnefndar og prófmeistara og annast félagið greiðslur fyrir vinnuna.

VI. KAFLI
Önnur ákvæði.

18. gr.
Menntafélag byggingariðnaðarins gerir tillögur til menntamálaráðuneytisins um veitingu starfsréttinda í bygginga- og mannvirkjagreinum þegar það á við, svo sem í iðngreinum er nýlega hafa hlotið löggildingu. Greiðslur vegna þessa eru ekki innifaldar í einingaverðum skv. 16. gr.

19. gr.
Skv. 9. gr. reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun getur starfsgreinaráð óskað eftir því að menntamálaráðherra skipi sérstaka nefnd er fjallar um umsóknir meistara eða fyrirtækja um leyfi til að hafa nema á námssamningi. Fari svo að slíkar nefndir verði skipaðar í bygginga- og mannvirkjagreinum sér Menntafélag byggingariðnaðarins þeim fyrir skrifstofuaðstöðu og ritaraþjónustu vegna þeirra verkefna sem henni eru falin. Greiðslur vegna þessa eru ekki innifaldar í einingaverðum skv. 16. gr.


20. gr.
Menntamálaráðuneytið annast eftirlit vegna þessa samnings í samræmi við ákvæði laga nr. 80/1996 og reglugerðar nr. 280/1997 um námssamninga. Menntamálaráð-herra skipar sérstakan eftirlits- og vinnuhóp til þess að fylgjast með framkvæmd samningsins og skal hann skila skýrslu til ráðherra einu sinni á ári.


21. gr.
Umsjón Menntafélagsins með námssamningum hefst þegar samningurinn hefur verið undirritaður, en umsýsla með sveinsprófum hefst 1. okt. 1998. Samningurinn er uppsegjanlegur með tveggja mánaða fyrirvara, þó aldrei skemur en þremur mánuðum fyrir næsta fyrirhugaða sveinsprófahald. Samningurinn tekur ekki til aðila innan Múrarafélags Reykjavíkur eða aðildarfélaga innan Múrarasambands Íslands.

22. gr.
Samningurinn skal tekinn til endurskoðunar þegar einhver samningsaðila óskar eftir því.


23. gr.
Af samningnum eru gerð tvö samhljóða frumrit og heldur menntamálaráðuneytið öðru, en Menntafélag byggingariðnaðarins hinu.

Reykjavík, 12. nóvember 1998

______________________________________
menntamálaráðherra



_________________________________
f.h. Samtaka iðnaðarins
_________________________________
f.h. Samiðnar


Sveinsprófsnefndir (v. gr. 2 – 6).



_______________________________
sveinsprófsnefnd í húsasmíði
_______________________________
sveinsprófsnefnd í húsgagnasmíði
_______________________________
sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun
_______________________________
sveinsprófsnefnd í málaraiðn
_______________________________
sveinsprófsnefnd í múraraiðn
_______________________________
sveinsprófsnefnd í pípulögnum



_______________________________
sveinsprófsnefnd í veggfóðrun




_________________________________
f.h. Menntafélags byggingariðnaðarins




Viðauki
við samning menntamálaráðuneytisins og Menntafélags byggingariðnaðarins
dags. 12. nóvember 1998.


Menntamálaráðuneytið og Menntafélag byggingariðnaðarins hafa orðið ásátt um svofellda breytingu á samningi um umsýslu sveinsprófa og eftirlit með gerð námssamninga í byggingaiðngreinum sem undirritaður var 12. nóvember 1998:

1. gr.
16. gr. samningsins orðist svo: "Menntamálaráðuneytið greiðir Menntafélagi byggingariðnaðarins kr. 38.000 fyrir hvern nemanda er þreytir sveinspróf. Þá greiðir menntamálaráðuneytið 7.770 kr. fyrir hvern náms- og starfsþjálfunarsamning sem gerður er á vegum Menntafélagsins. Greiðslur taka breytingum í samræmi við launaþróun á hverjum tíma eins og hún er framreiknuð í fjárlögum hverju sinni. Launaþróun skal skoðuð einu sinni á ári, í fyrsta skipti 1. janúar 2000."
2. gr.
19. gr. samningsins orðist svo: "Menntamálaráðuneytið fellst á að fagnefndir byggingaiðngreina innan Menntafélags byggingariðnaðarins taki að sér hlutverk nemaleyfisnefnda skv. 9. gr. reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun nr. 280/1997. Greiðslur vegna starfa þeirra eru ekki innifaldar í einingaverðum skv. 16. gr. Samið verður sérstaklega um greiðslur fyrir vinnu þeirra."
3. gr.
Menntamálaráðuneytið greiðir Menntafélagi byggingariðnaðarins eingreiðslu við undirritun viðauka vegna kostnaðar af sveinsprófum fyrir árið 1999 að upphæð 200.000 kr.




Reykjavík, 21. október 1999,


________________________
f.h. menntamálaráðuneytisins
_______________________________
f.h. Menntafélags byggingariðnaðarins



Til baka í allar tegundir