ERINDISBRÉF
fyrir þjóðminjavörð
Þjóðminjavörður er embættismaður, sbr. 13. tl. 1. mgr. 22. gr. og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 9. gr. laga nr. 150/1996. Hann er ábyrgur gagnvart menntamálaráðherra fyrir rekstri og starfsemi Þjóðminjasafns Íslands. Honum ber að framfylgja lögum, reglugerðum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum sem um stofnunina gilda á hverjum tíma og stýra starfi hennar í samræmi við erindisbréf þetta.
Hlutverk Þjóðminjasafns Íslands er að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka minjar um menningarsögu þjóðarinnar og kynna þær almenningi.
Þjóðminjavörður markar stefnu Þjóðminjasafnsins í samráði við Þjóðminjaráð. Hann ber stjórnunarábyrgð á daglegum rekstri, skipulagningu sýninga á vegum safnsins og allri annarri starfsemi þess. Meiri háttar ákvarðanir skal hann bera undir þjóðminjaráð.Þjóðminjavörður ber ábyrgð á því að starfsemi og rekstur Þjóðminjasafns Íslands sé í samræmi við árangursstjórnunarsamninga sem safnið gerir við menntamálaráðuneytið á hverjum tíma og kveða á um gagnkvæmar skyldur samningsaðila vegna þeirra verkefna sem bókasafninu hafa verið falin.Þjóðminjavörður ber ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma Þjóðminjasafnsins sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir safnsins séu nýttir á árangursríkan hátt. Hann hefur umsjón með gerð árlegrar fjárhagsáætlunar vegna undirbúnings fjárlaga. Skal henni fylgja greinargerð um hvernig starfsmarkmiðum stofnunarinnar verði náð með hliðsjón af langtímaáætlun.
Þjóðminjavörður ræður starfsfólk safnsins, gerir við það ráðningarsamninga og hefur yfirumsjón með framkvæmd þeirra í samræmi við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og gildandi kjarasamninga.
Þjóðminjavörður hefur yfirumsjón með húsakynnum Þjóðminjasafnsins og öllum eignum þess.
Um ábyrgð þjóðminjavarðar að öðru leyti en að framan greinir fer eftir ákvæðum laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.Erindisbréf þetta, sem sett er samkvæmt 38. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og með skírskotun til þjóðminjalaga nr. 88/1989 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir þar til annað verður ákveðið af menntamálaráðherra.
Menntamálaráðuneytið, 19. maí 2000.
Sjá: Auglýsing nr. 905/2000 um erindisbréf forstöðumanna ríkisstofnana sem heyra undir menntamálaráðuneyti
Til baka í allar tegundir