Reglur
um fornám í framhaldsskólum nr. 328/1997

 

1. gr.

Fornám er ætlað nemendum sem lokið hafa grunnskóla en hafa ekki náð tilskildum námsárangri til þess að fullnægja inntökuskilyrðum á einstakar námsbrautir framhaldsskóla og geta því ekki hafið nám á þeim námsbrautum án frekari undirbúnings.

 

2. gr.

Fornám skal skipulagt sem eins árs/tveggja anna nám í framhaldsskóla. Markmið námsins er að:

Markmið námsins, námsskipulag og leiðbeiningar um inntöku nemenda skulu skilgreind í aðalnámskrá framhaldsskóla og útfærð nánar í skólanámskrá.

 

3. gr.

Menntamálaráðherra ákveður í hvaða framhaldsskólum fornám skuli fara fram. Við mat á því hvort efnt skuli til fornáms við framhaldsskóla skal taka mið af fjölda nemenda og aðstæðum hverju sinni.

 

4. gr.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. sbr. 15. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og öðlast þegar gildi.

 

 

 

Menntamálaráðuneytinu, 16. maí 1997.

 



Slóð að þessu skjali: http://brunnur.stjr.is/mrn/logogregl.nsf/nrar/reglur3281997


Til baka í allar tegundir