um staðfestingu reglugerðar fyrir Tónlistarskóla Árnesinga.
Með vísan til 2. gr. laga nr. 75/1985 um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla staðfestist hér með reglugerð fyrir Tónlistarskóla Árnesinga, sem samþykkt var af héraðsnefnd Árnesinga hinn 14. desember 2001 og birtist sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 3. febrúar 2004.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Guðmundur Árnason.
Fylgiskjal.
Reglugerð fyrir Tónlistarskóla Árnesinga.
1. gr.
Heiti skólans er Tónlistarskóli Árnesinga. Skólinn er eign sveitarfélaga í Árnessýslu og fer héraðsnefnd Árnesinga með yfirstjórn hans. Heimili tónlistarskólans og varnarþing er á Selfossi.
2. gr.
Skólinn starfar eftir ákvæðum gildandi laga og reglugerða um tónlistarskóla og tónlistarfræðslu.
Skólastarfið fer fram í einstökum aðildarsveitarfélögum eftir því sem nemendafjöldi gefur tilefni til.
3. gr.
Markmið með rekstri skólans er að veita almenna tónlistarfræðslu og stuðla að eflingu tónlistarlífs í héraðinu. Þessu markmiði hyggst skólinn meðal annars ná með því:
Að annast kennslu í hljóðfæraleik og söng ásamt kennslu í öðrum tónlistargreinum sem gert er ráð fyrir í námsskrá tónlistarskóla.
Að búa nemendum fjölbreytt skilyrði til að þroska tónlistarhæfileika sína og sköpunargáfu.
Að leggja áherslu á félagslegt gildi tónlistariðkunar með þátttöku nemenda í samleik, kór- og hljómsveitarstarfi.
Að búa nemendur undir áframhaldandi nám í tónlist.
Að gera fullorðnum kleift að auðga tómstundir sínar með tónlistariðkun.
4. gr.
Héraðsnefnd Árnesinga kýs þrjá menn í skólanefnd Tónlistarskóla Árnesinga og jafnmarga til vara á árlegum vorfundi sínum.
Skólanefnd heldur fundi eftir því sem þurfa þykir og ræður meirihluti atkvæða úrslitum mála á stjórnarfundum. Skólanefnd skiptir með sér verkum á fyrsta fundi nýkjörinnar nefndar og kýs sér formann, varaformann og ritara.
Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri sitja skólanefndarfundi með málfrelsi og tillögurétt.
5. gr.
Skólanefnd Tónlistarskóla Árnesinga starfar í umboði héraðsnefndar Árnesinga. Hún hefur á hendi stjórn tónlistarskólans, markar honum stefnu, sem endurskoðuð er á fjögurra ára fresti og fer með öll mál er skólann varða.
Skólanefnd semur og samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun tónlistarskólans fyrir ár hvert og fylgist með fjárhag hans og ráðstöfun fjár. Fjármál skólans eru að öðru leyti á ábyrgð skólastjóra sem annast daglegan rekstur hans í umboði skólanefndar. Skólanefnd sendir héraðsnefnd starfsáætlun og rökstudda beiðni um fjárframlag fyrir komandi starfsár í síðasta lagi 15. nóvember ár hvert til afgreiðslu á haustfundi héraðsnefndar Árnesinga. Jafnframt skal skólanefndin senda héraðsnefnd ársskýrslu og endurskoðaðan ársreikning liðins árs fyrir 1. mars ár hvert.
Héraðsnefnd setur skólanefndinni erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verkefni og starfshætti nefndarinnar.
6. gr.
Skólanefnd Tónlistarskóla Árnesinga ræður skólastjóra. Nefndin ræður aðstoðarskólastjóra að fenginni tillögu skólastjóra.
Skólastjóri starfar í umboði skólanefndar og annast hann daglega stjórnun skólans í samráði við skólanefnd. Hann skal starfa samkvæmt ráðningarsamningi sem skólanefndin samþykkir. Ráðningarkjör skulu ákvörðuð af héraðsráði.
Skólastjóri ræður kennara og aðra starfmenn í samræmi við samþykkta starfs- og fjárhagsáætlun skólans og í samráði við skólanefnd.
7. gr.
Tekjustofnar skólans eru þessir:
Framlög sveitarfélaga
Skólagjöld nemenda
Tekjur af eignum
Sala á þjónustu
Frjáls framlög og gjafir
8. gr.
Héraðsnefnd Árnesinga og aðildarsveitarfélög hennar skuldbinda sig til þess að greiða allan launakostnað og launatengd gjöld vegna skólans, eftir svofelldri reikniaðferð.
75% kostnaðar miðast við fjölda kennslustunda á hvert sveitarfélag
25% kostnaðar miðast við íbúafjölda hvers sveitarfélags
Hvert sveitarfélag fyrir sig sér um að húsnæði sé til staðar fyrir tónlistarkennslu.
9. gr.
Til að breytingar á reglugerð þessari nái fram að ganga þarf til þess samþykki 2/3 hluta fulltrúa í héraðsnefnd Árnesinga, nema hvað varðar breytingar er beinlínis stafa af breyttri löggjöf.
10. gr.
Reglugerð þessi er samþykkt af héraðsnefnd Árnesinga 14. desember 2001.