Nr. 398 6. maí 2004
REGLUR
um Raunvísindastofnun Háskólans.
1. gr.
Almennt.
Raunvísindastofnun Háskólans (RH) er vettvangur rannsókna í raunvísindum við Háskóla Íslands.
Stofnunin heyrir undir raunvísindadeild eins og nánar er kveðið á um í reglum þessum.
2. gr.
Hlutverk.
Hlutverk Raunvísindastofnunar og stofnana sem hún samanstendur af, er að stunda grunnrannsóknir í raunvísindum.
Ennfremur skal stofnunin eftir föngum:
a. stuðla að hagnýtingu nýjunga á fræðasviðum stofnunarinnar,
b. veita kennurum og framhaldsnemum rannsóknaraðstöðu á sviðum stofnunarinnar,
c. veita sérfræðiaðstoð, ráðgjöf og annast fræðslustarfsemi, en þessi verkefni eru unnin gegn greiðslu eftir því sem við á,
d. taka virkan þátt í rannsóknasamstarfi á norrænum og öðrum alþjóðlegum vettvangi.
Þá skal Raunvísindastofnun veita nemendum í framhaldsnámi sem þar hafa rannsóknaraðstöðu þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum eftir því sem unnt er, en um önnur kennslustörf sérfræðinga stofnunarinnar fer samkvæmt samningum við háskóladeildir.
3. gr.
Stjórnskipulag.
Raunvísindastofnun Háskólans samanstendur af tveimur faglega sjálfstæðum stofnunum:
1. Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnun Háskólans (EH)
2. Jarðvísindastofnun Háskólans (JH)
Stjórn Raunvísindastofnunar er heimilt, með samþykki raunvísindadeildar, að ákveða aðra skiptingu í stofnanir. Í starfsreglum um stofnanir er nánar kveðið á um skipulag starfseminnar og að hve miklu leyti heimildir skv. þessum reglum eru nýttar, m.a. um stofuskiptingu, hlutverk funda innan stjórnunareininga o.fl.
Heimilt er í þessum starfsreglum að kveða á um skipan verkefnanefnda sem hafi hlutverk við stjórn hverrar stofnunar.
Um stjórn Jarðvísindastofnunar gildir að hún skal skipuð fimm mönnum til fjögurra ára í senn. Þrír skulu kjörnir af stofnunarfundi Jarðvísindastofnunar, einn skipaður af verkefnanefnd Norræna eldfjallasetursins og einn skipaður af deildarforseta raunvísindadeildar og skal sá vera viðurkenndur jarðvísindamaður, starfandi á alþjóðavettvangi utan Norðurlanda.
Í starfsreglum skal kveðið nánar á um skipan stjórna einstakra stofnana.
Starfsreglur stofnunar skulu hljóta staðfestingu stjórnar Raunvísindastofnunar. Þá staðfestir stjórn Raunvísindastofnunar skipurit fyrir starfsemina, þar sem stjórnunareiningar eru tilgreindar og kveðið er á um hvaða stofnun starfsmenn skv. b- og d-lið 11. gr. tilheyri.
4. gr.
Rannsókna- og skrifstofuaðstaða.
Raunvísindastofnun veitir starfsliði sínu, sbr. 11. gr., aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er. Til aðstöðu teljast skrifstofur og búnaður þeirra, rannsóknarstofur, mælitæki og áhöld og efni sem notuð eru til mælinga og gagnasöfnunar á rannsóknarstofum og við útivinnu svo og vinnuaðstaða styrkþega og nemenda í framhaldsnámi.
Heimilt er að veita kennurum við aðrar deildir rannsóknaaðstöðu við Raunvísindastofnun, enda starfi þeir á einhverju af fagsviðum stofnunarinnar.
5. gr.
Stjórn RH.
Stjórn Raunvísindastofnunar er skipuð stjórnarformanni, varaformanni stjórnar, formönnum stjórna stofnana skv. 3. og 13. gr. og fulltrúa starfsmanna. Formaður og varaformaður stjórnar skulu vera úr hópi starfsmanna skv. a- eða b-lið 11. gr.
Formaður stjórnar, varaformaður og fulltrúi starfsmanna eru kjörnir í skriflegri kosningu í janúar til fjögurra ára í senn af þeim hópum starfsmanna sem greinir í liðum a-d í 11. gr.
Stjórnarskipti fara fram 1. júlí á því ári sem kjör stjórnarmanna hefur farið fram.
Stjórn Raunvísindastofnunar skiptir að öðru leyti með sér verkum.
6. gr.
Verkefni stjórnar RH og stjórna stofnana hennar.
Stjórn Raunvísindastofnunar hefur yfirsýn yfir starfsemi stofnunarinnar í heild og fjármál og annast rekstur sameiginlegrar skrifstofu undir stjórn framkvæmdastjóra.
Stjórnir stofnana innan Raunvísindastofnunar semja rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir sína stofnun. Stjórn Raunvísindastofnunar ber ábyrgð á fjárhagsáætlun og uppgjöri gagnvart deild og háskólaráði. Stjórn Raunvísindastofnunar ákveður skiptingu fjárveitinga í samræmi við vilja þeirra sem leggja starfseminni til fé, sbr. 14. gr. og staðfestir reikninga liðins árs.
Stjórn Raunvísindastofnunar ráðstafar húsnæði því sem hún hefur til afnota til stofnana og sameiginlegra þarfa. Áætlanir um húsnæðisþörf og rannsóknaraðstöðu vegna starfsemi stofnunarinnar skulu lagðar fyrir raunvísindadeild.
Stjórn Raunvísindastofnunar gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir.
Stjórnir stofnana innan Raunvísindastofnunar bera undir stofnanafundi ráðningu sérfræðinga skv. b-lið 11. gr.
Stjórn Raunvísindastofnunar staðfestir nánari starfsreglur um stofnanafundi og önnur atriði sem varða einstakar stofnanir innan Raunvísindastofnunar.
Stjórn Raunvísindastofnunar stendur að útgáfu ársskýrslu stofnunarinnar.
7. gr.
Fundir stjórnar Raunvísindastofnunar.
Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með minnst þriggja daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Formaður stýrir stjórnarfundum.
Skylt er að boða stjórnarfund óski einn eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti raunvísindadeildar eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum.
Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.
Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send forseta raunvísindadeildar. Fundargerðir skulu aðgengilegar öllum starfsmönnum stofnunarinnar.
Framkvæmdastjóri er ritari stjórnar.
8. gr.
Stofnanafundir.
Stofnanafundir skulu haldnir innan stofnana Raunvísindastofnunar. Forstöðumaður eða formaður stjórnar boðar til stofnanafundar sinnar stofnunar, bréflega eða í tölvupósti með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Formaður stjórnar stýrir stofnunarfundum.
Skylt er að boða til fundar ef formaður stjórnar RH eða þriðjungur þeirra, sem rétt eiga til fundarsetu, æskir þess. Rétt til setu á stofnunarfundi eiga starfsmenn skv. a- til d-lið 11. gr. Öllum sem setu eiga á stofnunarfundum er skylt að sækja fundina.
Stofnunarfundur er ályktunarbær ef helmingur atkvæðisbærra manna sækir fund.
Að fenginni umfjöllun stofnunarfundar um ráðningu sérfræðinga skv. b-lið 11. gr. gerir stjórnin tillögu til rektors um veitingu starfsins, í samræmi við reglur sem raunvísindadeild hefur samþykkt.
Starfsmenn skv. a- til d-lið 11. gr. eru atkvæðisbærir í öllum málum, þó þannig að einungis starfsmenn skv. a- og b-lið 11. gr. eru atkvæðisbærir um mál er varða ráðningu starfsmanna.
Stjórnarformenn stofnana innan Raunvísindastofnunar skulu leggja allar meiriháttar breytingar á stefnu í rannsóknum undir stofnunarfundi.
Stofnunarfundur fjallar um rannsóknir, meiriháttar tækjakaup og starfsaðstöðu.
Fundargerðir skulu aðgengilegar öllum þeim sem sæti eiga á stofnunarfundi.
9. gr.
Stofufundir.
Heimilt er í starfsreglum stofnunar skv. 3. gr. að kveða á um stofuskiptingu hennar. Ef stofnun er skipt í stofur skal halda stofufundi skv. ákvæðum þessarar greinar.
Stofustjóri boðar stofufund bréflega eða í tölvupósti með minnst þriggja daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Rétt til setu á stofufundi eiga starfsmenn viðkomandi stofu skv. a- til d-lið 11. gr. Stofustjóri stýrir stofufundi. Stofufundur er ályktunarbær ef meirihluti atkvæðisbærra manna sækir fund. Afl atkvæða ræður úrslitum mála. Ef atkvæði eru jöfn ræður hlutkesti.
Skylt er að boða til stofufundar ef þriðjungur þeirra, sem rétt eiga til fundarsetu, æskir þess.
Stofufundur er æðsta vald í sameiginlegum málum hverrar stofu öðrum en fjármálum, sbr. 14. gr. Þó skal stofufundur staðfesta skiptingu fjárveitingar stjórnar að fenginni tillögu stofustjóra.
Stofufundur fjallar um rannsóknir, meiriháttar tækjakaup og starfsaðstöðu.
Fundargerðir skulu aðgengilegar öllum þeim sem sæti eiga á stofufundi.
10. gr.
Starfsmannafundir Raunvísindastofnunar.
Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar boðar til starfsmannafundar með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Formaður stjórnar stýrir starfsmannafundum.
Skylt er að boða til fundar ef forseti raunvísindadeildar, rektor eða þriðjungur þeirra, sem rétt eiga til fundarsetu, æskir þess. Rétt til setu á starfsmannafundi eiga allir starfsmenn stofnunarinnar. Starfsmenn skv. a- til d-lið 11. gr. hafa atkvæðisrétt en starfsmenn skv. e- og f-lið 11. gr. málfrelsi og tillögurétt án atkvæðisréttar. Starfsmannafundur er ályktunarbær ef meirihluti atkvæðisbærra manna sækir fund.
Starfsmannafundir eru vettvangur stjórnarinnar til þess að kynna störf sín. Starfsmannafundir fjalla um sameiginleg málefni stofnunarinnar og gera tillögur til stjórnar um meðferð sameiginlegra málefna.
Fundargerðir skulu aðgengilegar öllum starfsmönnum stofnunarinnar.
11. gr.
Starfslið.
Starfslið Raunvísindastofnunar er:
a. Kennarar við Háskóla Íslands sem veitt er rannsóknaaðstaða á stofnuninni.
b. Sérfræðingar sem ráðnir eru til sjálfstæðra rannsókna.
c. Háskólamenntaðir rannsóknamenn sem lúta verkefnisstjórum við rannsóknastörf, svo og þeir sem hafa rannsóknastöðustyrki.
d. Annað starfslið, þar á meðal tæknimenntaðir starfsmenn og starfslið á skrifstofu.
e. Skammtímaráðið starfslið, þar á meðal stúdentar í sumarvinnu eða framhaldsnámi.
f. Einstaklingar sem stofustjóri eða forstöðumaður veitir starfsaðstöðu um takmarkaðan tíma.
Um ráðningu starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf, og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fyrir Háskóla Íslands, fer stjórn Raunvísindastofnunar með ráðningarmálið. Stjórnin getur í þeim tilvikum framselt ráðningarvaldið til stofnana Raunvísindastofnunar.
12. gr.
Stofustjórar, deildarstjórar og verkefnisstjórar.
Sé stofnun skv. 3. gr. skipt í rannsóknastofur skal stofustjóri vera fyrir hverri þeirra. Stofustjóri sem ásamt varamanni er kjörinn til fjögurra ára í senn úr hópi starfsmanna á viðkomandi stofu skv. a- eða b-lið 11. gr. Kjörtímabil stofustjóra er frá 1. júlí á því ári sem hann er kjörinn til 30. júní að fjórum árum liðnum. Kosning skal vera skrifleg og skal henni lokið fyrir 1. febrúar á því ári sem kjörtímabil fráfarandi stofustjóra rennur út. Reynist atkvæði hafa fallið jöfn á tvo eða fleiri af þeim sem í kjöri eru og fengið hafa flest atkvæði, skal hlutkesti ráða niðurstöðu kosningar.
Sé stofu skipt í deildir skal deildarstjóri kjörinn ásamt varamanni á sama hátt.
Varamenn taka við störfum stofustjóra og deildarstjóra í forföllum.
Stofustjóri hefur eftirlit með fjármálum stofu sinnar og er ábyrgur gagnvart stjórn stofnunarinnar í starfi sínu.
Starfsmenn skv. a- og b-lið 11. gr. eru verkefnisstjórar. Þeir bera faglega ábyrgð á verkefnum sínum og fjárhagslega ábyrgð gagnvart forstöðumanni stofnunar eða stofustjóra viðkomandi stofu, sé stofnun skipt með þeim hætti. Verkefnisstjórar skulu eftir því sem við á gera skriflegan samning við verkkaupa þar sem verkið er skilgreint og greiðsluáætlun kemur fram.
Óski verkefnaráðinn starfsmaður skv. c-lið 11. gr. eftir því að sækja um styrk til sjálfstæðra rannsókna með aðstöðu á stofnuninni, skal hann afla samþykkis stofustjóra eða forstöðumanns fyrir því.
13. gr.
Forstöðumenn og framkvæmdastjóri.
Forstöðumenn stofnana innan Raunvísindastofnunar skulu ráðnir á grundvelli hæfnismats skv. III. kafla reglna nr. 458/2000. Skulu þeir sem ráðnir eru til þeirra starfa vera virtir vísindamenn með umfangsmikla stjórnunarreynslu.
Um hlutverk og störf forstöðumanna gilda að öðru leyti ákvæði sameiginlegra reglna H.Í.
Stjórn Raunvísindastofnunar ræður framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjórinn veitir sameiginlegri skrifstofu Raunvísindastofnunar forstöðu og sér um daglegan rekstur sameiginlegra mála.
Stjórn Raunvísindastofnunar setur framkvæmdastjóra erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans. Framkvæmdastjóri er ábyrgur gagnvart stjórninni í starfi sínu.
14. gr.
Fjármál og reikningshald.
Tekjur Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:
a. framlag frá Háskóla Íslands skv. ákvörðun háskólaráðs,
b. framlag frá raunvísindadeild,
c. fjárveitingar, framlög úr ríkissjóði og styrkir til einstakra verkefna,
d. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
e. aðrar tekjur eða gjafir.
Reikningshald Raunvísindastofnunar er sjálfstætt. Afrit fjárhagsáætlunar skal sent deildarforseta raunvísindadeildar auk ársreiknings sem einnig skal kynntur háskólaráði.
Veiti Raunvísindastofnun þjónustu í frjálsri samkeppni við atvinnustarfsemi annarra aðila skal sú starfsemi stofnunarinnar afmörkuð frá öðrum rekstri. Gæta ber að þeim ákvæðum samkeppnislaga sem banna niðurgreiðslu samkeppnisrekstrar með opinberu fé.
Stjórn Raunvísindastofnunar ákveður bókhalds-, stjórnunar- og aðstöðugjald til stofnunarinnar af sértekjum, innan ramma sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands.
15. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 41/1999 um Háskóla Íslands, sbr. 27. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 1014/2001, um Raunvísindastofnun Háskólans.
Ákvæði til bráðabirgða.
Gildi þessa bráðabirgðaákvæðis er háð samningi Háskóla Íslands (vegna Raunvísindastofnunar) og Norrænu ráðherranefndarinnar um samruna Norrænu eldfjallastöðvarinnar og jarðvísindahluta Raunvísindastofnunar.
Innan viku frá því að samningur Háskólans og Norrænu ráðherranefndarinnar er undirritaður skal stjórn RH skipa bráðabirgðastjórnir fyrir Jarðvísindastofnun og Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnun samkvæmt því sem segir í liðum I. – III.
I.
Bráðabirgðastjórn Jarðvísindastofnunar skal skipuð sex aðalmönnum, einum tilnefndum af rektor og er sá formaður stjórnar, einum kjörnum af deildarráði raunvísindadeildar, einum kjörnum af stjórn Norrænu eldfjallastöðvarinnar og þremur sem kjörnir eru af sameiginlegum fundi starfsmanna Norrænu eldfjallastöðvarinnar og starfsmanna jarðvísindahluta Raunvísindastofnunar. Varamenn kjörinna fulltrúa skulu kjörnir með sama hætti. Við undirbúning að kjöri fulltrúa í bráðabirgðastjórn skal tekið tillit til jafnvægis milli þeirra hópa starfsmanna sem sameinast innan hinnar nýju stofnunar.
Atkvæðisrétt á sameiginlegum starfsmannafundi hafa allir starfsmenn utan þeir sem nefndir eru í e- og f-lið 11. gr. Atkvæði skulu greidd skriflega og í tveimur umferðum.
II.
Bráðabirgðastjórn Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnunar skal skipuð fráfarandi stofustjórum eðlisfræðistofu, efnafræðistofu, lífefnafræðistofu, reiknifræðistofu og stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar.
III.
Verkefni bráðabirgðastjórna eru eftirfarandi:
a) Að undirbúa, í samráði við stjórn RH og einstaka stofustjóra, að starfsemi Raunvísindastofnunar verði skipt upp innan nýrra sjálfstæðra stofnana sem taki til starfa 1. júlí 2004.
b) Að útbúa tillögu að starfsreglum fyrir nýjar stofnanir sem lagðar verða fram til staðfestingar stjórnar RH.
c) Að undirbúa, eftir því sem við á, ráðningu forstöðumanns og skipan verkefnanefnda.
d) Að halda stofnanafundi og leggja tillögur fyrir slíka fundi, m.a. um ráðningu starfsfólks, sbr. 5. mgr. 6. gr. reglna þessara.
Umboð bráðabirgðastjórnanna rennur út er fyrstu stjórnir stofnananna hafa verið kjörnar í samræmi við 3. gr. reglna þessara um Raunvísindastofnun og ákvæði starfsreglna sem bráðabirgðastjórnir leggja fram til staðfestingar stjórnar RH. Kjörið skal fara fram innan árs frá því að stofnanirnar taka til starfa. Um störf bráðabirgðastjórna gilda almennar reglur Háskólans eftir því sem við á.
Formaður, varaformaður og fulltrúi starfsmanna í stjórn RH skulu kjörnir í samræmi við ákvæði 2. mgr. 5. gr. er kjörtímabil núverandi formanns og fulltrúa starfsmanna rennur út í lok júní 2006. Skipunartími núverandi varamanns fulltrúa starfsmanna og varaformanns framlengist til sama tíma, en umboð stofustjóra til setu í stjórn RH rennur út er formenn stjórna Jarðvísindastofnunar og Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnunar hafa verið valdir í samræmi við starfsreglur um þessar stofnanir.
Háskóla Íslands, 6. maí 2004.
Páll Skúlason.