Viljayfirlýsing

Skóli um endurnýjanlega orkugjafa (RES - The School for Renewable Energy) og Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) lýsa yfir vilja til samstarfs um eflingu meistaranáms á sviði endurnýjanlegra orkugjafa (M.Sc. in Renewable Energy Science). Skólinn er starfræktur af Orkuvörðum ehf. í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands og fjölda erlendra mennta- og rannsóknastofnanna, með fulltingi íslenskra stjórnvalda. ÍSOR er opinber rannsóknarstofnun á sviði náttúrufars, orkumála og auðlindamála sem starfar á samkeppnisgrundvelli og fær engar opinberar fjárveitingar.

Skaðleg áhrif gróðurhúsalofttegunda á andrúmsloftið, breytt veðurfar, loftlagsbreytingar, mengun samfara orkuframleiðslu víðs vegar í heiminum, margs konar umhverfissjónarmið, hækkandi olíuverð, þverrandi orkulindir jarðefnaeldsneytis og beinn orkuskortur eru atriði sem ýta undir aukna áherslu á þróun og innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa. Hérlendis er yfir 73% af orkuþörfinni mætt með endurnýjanlegum orkugjöfum og hefur Ísland á ákveðinn hátt verið öðrum þjóðum fyrirmynd til eftirbreytni. Sú þekking og reynsla sem íslensk fyrirtæki á borð við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) bjóða upp á er mjög mikilvægur þekkingarauður og getur nýst á alþjóðlegum vettvangi.

Markmið þessarar viljayfirlýsingar er að stuðla að farsælli uppbyggingu skólans, sem mun bjóða upp á eins árs 90 ECTS eininga alþjóðlegt meistaranám, á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Námið verður byggt á farsælu samstarfi við íslensk fyrirtæki á borð við ÍSOR sem þekkja vel til tæknilegra og hagnýtra þátta orkumála, umhverfismála sem tengjast orkunýtingu, orkubúskapar, um sjálfbæra orkuöflun og hafa innsýn í stjórnun orkumála, orkuhagfræði og mörkun orkustefnu.

Samstarf ÍSOR og RES mun leggja áherslu á eftirfarandi atriði:

Efling menntunar
Efla og nota þær auðlindir sem fólgnar eru í mannauði ÍSOR og RES í því skyni að auka almenna þekkingu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Það er hagur beggja aðila að menntun og þjálfun á sviði orkumála verði vel fyrir komið á háskólastigi hér á landi.


Vettvangsheimsóknir
ÍSOR getur verið heppilegur og mikilvægur vettvangur til heimsókna fyrir nemendur skólans. Í því samhengi veitir ÍSOR RES heimild til að koma á samningstímanum með nemendur í vettvangsheimsóknir til ÍSOR til að kynnast starfseminni. Vettvangs-heimsóknir verða útfærðar með nánara samráði samningsaðila í hverju tilviki.

Upplýsingamiðlun og stuðningur við kennslu í RES
Íslenskar orkurannsóknir eru reiðubúnar að taka að sér gegn greiðslu kennslu og leiðsögn nemenda RES samkvæmt nánara samkomulagi í hverju tilviki. RES mun njóta hliðstæðra kjara í viðskiptum við ÍSOR og Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna nýtur.

Fjármál
Allar fjárhagslegar skuldbindingar, þ.m.t. ferðakostnaður og greiðslur vegna kennslu og vettvangsheimsókna, eru háðar samþykki beggja aðila í hverju tilviki.


Nýsköpun og alþjóðleg tengsl
Áhersla er lögð á að starfsemi RES verði til þess að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og styrki íslenskt samfélag með nýsköpun, tækniþróun, samstarfi og auknum alþjóðasamskiptum.


Kynningarmál
ÍSOR heimilar að RES kynni nafn ÍSOR á heimasíðu sinni sem formlegan samstarfsaðila.



Áritun og endurskoðun
Viljayfirlýsing þessi er gerð í þremur samhljóða eintökum og öðlast gildi við undirskrift samstarfsaðila.



Akureyri, 27. apríl 2007



f.h. RES The School for Renewable
Energy Science


_________________________
Björn Gunnarsson
Akademískur forstöðumaður
f.h. ÍSOR



_________________________
Ingibjörg Kaldal
Deildarstjóri





_________________________
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Menntamálaráðherra






Til baka í allar tegundir