Samstarfsyfirlýsing

RES - The School for Renewable Energy Science og Háskólinn á Akureyri (HA) munu starfa saman að eflingu meistaranáms á sviði endurnýjanlegra orkugjafa (M.Sc. in Renewable Energy Science). RES verður starfræktur af Orkuvörðum ehf. í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands og fjölda innlendra og erlendra mennta- og rannsóknastofnanna, með fulltingi íslenskra stjórnvalda.

Skaðleg áhrif gróðurhúsalofttegunda á andrúmsloftið, breytt veðurfar, loftlagsbreytingar, mengun samfara orkuframleiðslu víðs vegar í heiminum, margs konar umhverfissjónarmið, hækkandi olíuverð, þverrandi orkulindir jarðefnaeldsneytis og beinn orkuskortur eru atriði sem ýta undir aukna áherslu á þróun og innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa. Hérlendis er yfir 73% af orkuþörfinni mætt með endurnýjanlegum orkugjöfum og hefur Ísland á ákveðinn hátt verið öðrum þjóðum fyrirmynd og til eftirbreytni. Sú þekking og reynsla sem íslensk fyrirtæki og stofnanir bjóða upp á er mjög mikilvægur þekkingarauður og getur nýst á alþjóðlegum vettvangi.

Markmið þessarar yfirlýsingar er að stuðla að öflugu samstarfi RES og HA. RES mun bjóða upp alþjóðlegt meistaranám, á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Námið verður byggt á farsælu samstarfi við íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þekkja vel til tæknilegra og hagnýtra þátta orkumála, umhverfismála sem tengjast orkunýtingu, orkubúskapar, um sjálfbæra orkuöflun og hafa innsýn í stjórnun orkumála, orkuhagfræði og mörkun orkustefnu.

Samstarf RES og Háskólans á Akureyri mun byggjast á eftirfarandi atriðum:

1) Efling menntunar
Háskólinn á Akureyri og RES munu leitast við að auka þekkingu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Það er hagur beggja aðila að menntun og þjálfun á sviði orkumála verði vel fyrir komið á háskólastigi hér á landi og gæði náms verði tryggð. Til að ná þessu markmiði leggur HA einkum fram sérfræðiþekkingu og rannsóknaraðstöðu á sviði jarðvísinda, orkuvísinda, umhverfisvísinda og viðskipta- og hagfræði eftir nánara samkomulagi.

Háskólinn á Akureyri og RES munu á árinu 2007 gera með sér þjónustusamning. Samningurinn mun m.a. fjalla um þá menntun sem Háskólinn á Akureyri kemur að, faglegri ábyrgð hans og aðgang að þjónustu og aðstöðu skólans. Í þjónustusamningnum verður nánar kveðið á um veitingu prófgráðu (university degree) við námslok.

2) Rannsóknaaðstaða
Háskólinn á Akureyri heimilar RES, samkvæmt nánara samkomulagi, aðgang að rannsóknaaðstöðu innan viðskipta- og raunvísindadeildar. Notkun RES á rannsóknaaðstöðu verður skipulögð í samráði við stjórnendur Háskólans á Akureyri.

3) Upplýsingamiðlun og skipulagning kennslu í RES
Háskólinn á Akureyri og RES vinna saman að skipulagningu og mönnun námskeiða á vegum RES sbr. lið 1. Sérfræðingar Háskólans á Akureyri fá laun fyrir störf sín hjá RES samkvæmt samningum á milli RES og HA.

4) Fjármál
Allar fjárhagslegar skuldbindingar, þ.m.t. ferðakostnaður og launagreiðslur vegna vettvangsheimsókna, eru háðar samþykki beggja aðila á hverjum tíma.

5) Nýsköpun og alþjóðleg tengsl
Áhersla er lögð á að starfsemi RES verði til þess að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og styrki íslenskt samfélag með nýsköpun, tækniþróun, samstarfi og auknum alþjóðasamskiptum. HA hefur byggt upp alþjóðlegt samstarfsnet háskóla í orkuvísindum, umhverfisvísindum og viðskipta- og hagfræði. RES hefur byggt upp alþjóðlegt samstarfsnet háskóla á sviði orkumála. Í neti RES eru rúmlega 30 háskólar. RES og Háskólinn á Akureyri munu vinna saman að því að efla samstarfsnet sín enn frekar.

6) Kynningarmál
Háskólinn á Akureyri heimilar að RES kynni nafn háskólans á heimasíðu sinni sem formlegan samstarfsaðila.

Áritun og endurskoðun
Samstarfsyfirlýsing þessi er gerð í þremur samhljóða eintökum og öðlast gildi við undirskrift samstarfsaðila.


Akureyri 27. apríl 2007



f.h. RES The School for Renewable
Energy Science


_________________________
Björn Gunnarsson
Akademískur forstöðumaður
f.h. Háskólans á Akureyri



_________________________
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Staðgengill rektors





_________________________
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Menntamálaráðherra



Til baka í allar tegundir