RES - The School for Renewable Energy Science og Háskóli Íslands (HÍ) munu starfa saman að eflingu meistaranáms á sviði endurnýjanlegra orkugjafa (M.Sc. in Renewable Energy Science). RES verður starfræktur af Orkuvörðum ehf. í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og fjölda erlendra mennta- og rannsóknastofnanna, með fulltingi íslenskra stjórnvalda.
Skaðleg áhrif gróðurhúsalofttegunda á andrúmsloftið, breytt veðurfar, loftlagsbreytingar, mengun samfara orkuframleiðslu víðs vegar í heiminum, margs konar umhverfissjónarmið, hækkandi olíuverð, þverrandi orkulindir jarðefnaeldsneytis og beinn orkuskortur eru atriði sem ýta undir aukna áherslu á þróun og innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa. Hérlendis er yfir 73% af orkuþörfinni mætt með endurnýjanlegum orkugjöfum og hefur Ísland á ákveðin hátt verið öðrum þjóðum fyrirmynd og til eftirbreytni. Sú þekking og reynsla sem íslensk fyrirtæki og stofnanir bjóða upp á er mjög mikilvægur þekkingarauður og getur nýst á alþjóðlegum vettvangi.
Markmið þessarar yfirlýsingar er að stuðla að öflugu samstarfi RES og HÍ. RES mun bjóða upp alþjóðlegt meistaranám, á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Námið verður byggt á farsælu samstarfi við íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þekkja vel til tæknilegra og hagnýtra þátta orkumála, umhverfismála sem tengjast orkunýtingu, orkubúskapar, um sjálfbæra orkuöflun og hafa innsýn í stjórnun orkumála, orkuhagfræði og mörkun orkustefnu.
Samstarf RES og Háskóla Íslands mun leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
1) Efling menntunar
Háskóli Íslands og RES munu leitast við að auka þekkingu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Það er hagur beggja aðila að menntun og þjálfun á sviði orkumála verði vel fyrir komið á háskólastigi hér á landi og gæði náms verði tryggð. Til að ná þessu markmiði leggur HÍ einkum fram sérfræðiþekkingu og rannsóknaraðstöðu á sviði jarðvísinda, orkuvísinda, verkfræði, umhverfisvísinda og viðskipta- og hagfræði eftir nánara samkomulagi. Sú menntun sem Háskóli Íslands kemur að er á faglegri ábyrgð hans. Í samstarfssamningi verði nánar kveðið á um veitingu prófgráðu (university degree) við námslok.
2) Vettvangsheimsóknir
Vettvangsheimsóknir frá RES til HÍ og öfugt verða skipulagðar í samráði stjórnenda RES og Háskóla Íslands.
3) Upplýsingamiðlun og skipulagning kennslu í RES
Háskóli Íslands og RES vinna saman að skipulagningu og mönnun námskeiða á vegum RES sbr. lið 1. Sérfræðingar Háskóla Íslands fá laun fyrir störf sín hjá RES samkvæmt samningum á milli RES og HÍ.
4) Fjármál
Allar fjárhagslegar skuldbindingar, þ.m.t. ferðakostnaður og launagreiðslur vegna vettvangsheimsókna, eru háðar samþykki beggja aðila á hverjum tíma.
5) Nýsköpun og alþjóðleg tengsl
Áhersla er lögð á að starfsemi RES verði til þess að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og styrki íslenskt samfélag með nýsköpun, tækniþróun, samstarfi og auknum alþjóðasamskiptum. HÍ hefur byggt upp alþjóðlegt samstarfsnet háskóla í jarðvísindum, orkuvísindum, verkfræði, umhverfisvísindum og viðskipta- og hagfræði. RES hefur byggt upp alþjóðlegt samstarfsnet háskóla á sviði orkumála. Í neti RES eru rúmlega 30 háskólar. RES og Háskóli Íslands munu vinna saman að því að efla samstarfsnet sín enn frekar.
6) Kynningarmál
Háskóli Íslands heimilar að RES kynni nafn háskólans á heimasíðu sinni sem formlegan samstarfsaðila.
Áritun og endurskoðun
Samstarfsyfirlýsing þessi er gerð í þremur samhljóða eintökum og öðlast gildi við undirskrift samstarfsaðila.
Akureyri 27. apríl 2007
f.h. RES The School for Renewable
Energy Science
_________________________
Björn Gunnarsson
Akademískur forstöðumaður