Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands.
1. gr.
Sjóðurinn heitir „Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum“. Heimili og varnarþing sjóðsins er í Reykjavík. Sjóðurinn er vistaður hjá styrktarsjóðum Háskóla Íslands í aðalbyggingu skólans við Suðurgötu.
2. gr.
Tilgangur sjóðsins er að að renna styrkum stoðum undir starfsemi SVF og stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar.
Tilgangi sínum nær sjóðurinn með því að veita styrki, fjárframlög og annan stuðning við verkefni á eftirfarandi sviðum:
a. rannsóknir á erlendum tungumálum: kennslufræði erlendra mála, máltaka, táknfræði, þýðingafræði, málfræði, málvísindi, menningarfræði, bókmenntir og notagildi tungumála í atvinnulífinu,
b. útgáfa ritverka á fræðasviðum SVF, ráðstefnu- og fyrirlestrahald,
c. þróun kennslugagna í erlendum tungumálum,
d. samvinna við erlendar stofnanir á fræðasviðum SVF,
e. önnur verkefni sem tengjast starfsemi SVF að mati sjóðsstjórnar.
3. gr.
Frumstofnendur sjóðsins og stofnframlag þeirra er sem hér greinir:
a. Háskóli Íslands, kt. 600169-2039, kr. 300.000.
b. Kaupþing banki hf., kt. 560882-0419, kr. 300.000.
Óskerðanlegt stofnframlag sjóðsins er því kr. 600.000.
Aðilar sem gerast sérstakir styrktaraðilar sjóðsins fram til 15. apríl 2005 teljast gagnvart sjóðnum einnig til stofnenda hans. Skal skipulagsskráin endurskoðuð þegar að þessu tímamarki liðnu með það fyrir augum að skráin geymi heildarlista yfir þá sem eru stofnendur sjóðsins ásamt fjárhæðum.
Stofnendur bera engar fjárhagslegar skuldbindingar vegna sjóðsins.
Stofnfé er bætist við óskerðanlegt stofnfé frumstofnenda, sbr. 2. mgr., skal að öllu jöfnu ekki skerða.
4. gr.
Fagráð SVF skipar sjóðnum níu manna stjórn, til tveggja ára í senn. Skulu stjórnarmenn ekki eiga hagsmuna að gæta varðandi úthlutanir og styrkveitingar sjóðsins.
Sjóðsstjórn kýs formann úr sínum hópi og skiptir að öðru leyti með sér verkum.
5. gr.
Sjóðsstjórn tekur ákvarðanir um ráðstöfun úr sjóðnum samkvæmt starfsreglum sem stjórnin setur. Í þeim skal m.a. kveðið á um að sjóðsstjórn veiti styrki á grundvelli umsókna, umsóknarfresti, auglýsingar styrkja og önnur frekari skilyrði fyrir styrkveitingum sem sjóðsstjórn telur nauðsynleg. Í starfsreglum skal einnig koma fram hversu háu hlutfalli af ávöxtun sjóðanna er heimilt að ráðstafa árlega.
Þá skal stjórnin vera virk í að byggja upp samskipti við styrktaraðila sem vilja leggja starfseminni lið. Sjóðsstjórn skal eftir því sem kostur er, taka tillit til óska gefenda um ráðstöfun einstakra gjafa. Nánar skal kveðið á um þetta í starfsreglum sjóðsstjórnar.
6. gr.
Sjóðsstjórn ber ábyrgð á ávöxtun sjóðsfjár og er heimilt að fela viðurkenndum fjárvörsluaðila umsjón með fjármunum sjóðsins.
7. gr.
Tekjur Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum eru eftirfarandi:
a. framlög styrktaraðila,
b. gjafir og áheit sem sjóðnum kunna að berast,
c. vextir og arður af eignum sjóðsins,
d. annað verðmæti sem safnast í nafni sjóðsins.
Tekjum skal einungis ráðstafað til starfsemi skv. 2. gr. skipulagsskrár þessarar.
Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið. Reikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda.
8. gr.
Um starfsemi sjóðsins fer eftir því sem segir í lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Skipulagsskrá þessari má breyta með samþykki sjö stjórnarmanna. Sama gildir ef sjóðurinn er lagður niður og ganga þá eignir hans til Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem ráðstafar þeim í samræmi við þann tilgang sem lýst er í 2. gr.
Staðfestingar dómsmálaráðherra skal leita á skipulagsskrá þessari og breytingum sem kunna að verða gerðar á henni.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.