Menntamálaráðherra og iðnaðarráðherra annars vegar og Samband sveitarfélaga á Austurlandi hins vegar fyrir hönd eftirtalinna sveitarfélaga á Austurlandi: Borgarfjarðarhrepps, Breiðdalshrepps, Djúpavogshrepps, Fjarðabyggðar, Fljótdalshéraðs, Fljótdalshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vopnafjarðarhrepps gera með sér svofelldan
S A M N I N G
um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál á Austurlandi svo sem nánar greinir í samningi þessum.
Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf á Austurlandi og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi við slíkt starf í einn farveg. Jafnframt er með samningi þessum stefnt að því að tryggja sem best frumkvæði og áhrif sveitarfélaganna við forgangsröðun verkefna og auka samstarf þeirra við framkvæmd og stefnumótun menningarmála í landsfjórðungnum.
2. gr.
Menningarráð Austurlands
Menningarráð Austurlands er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál sbr. samstarfssamning þeirra og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna í landsfjórðungnum samkvæmt ákvæðum samningsins og hafa eftirlit með framkvæmd hans.
Menningarráð Austurlands er skipað tveimur fulltrúum af hverju samstarfssvæði um menningarmál. Auk þess tilnefnir Þróunarfélag Austurlands einn fulltrúa.
Kostnaður við starfsemi ráðsins, m.a. vegna aðstöðu og starfsmanns, skal greiddur af því fé sem veitt er til að efna samning þennan og með beinum framlögum sveitarfélaganna á svæðinu.
3. gr.
Ríkisframlag til menningarmála
Stuðningur ríkisins, f.h. ríkissjóðs við menningarstarf og samstarf sveitarfélaga á Austurlandi samkvæmt samningi þessum er tvíþættur:
a. Veitt er fé til einstakra verkefna.
b. Veitt er mótframlag til reksturs Menningarráðs Austurlands.
Menntamálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti beita sér fyrir því að framlög ríkisins verði að lágmarki sem hér segir:
a. Árið 2008 48 millj. kr.
b. Árið 2009 48 millj. kr.
c. Árið 2010 48 millj. kr.
Fjárveitingar eru með fyrirvara um samþykki Alþingis.
Greiðslur samkvæmt þessari grein taka hvorki til greiðslna til byggðasafna, náttúruminjasafna eða listasafna á grundvelli safnalaga nr. 106/2001 né til héraðsskjalasafna á grundvelli laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985 með síðari breytingum. Samningur þessi nær ekki til annarra framlaga ríkisins á fjárlögum. Framlög til stofnstyrkja eru ekki hluti af samningi þessum og skal um slíka styrki semja sérstaklega milli aðila.
4. gr.
Hlutverk sveitarfélaga
Sveitarfélögin á Austurlandi beita sér fyrir því að heildarframlög þeirra til menningarmála verði að lágmarki sem hér segir:
a. Árið 2008 250 millj. kr.
b. Árið 2009 250 millj. kr.
c. Árið 2010 250 millj. kr.
Sveitarfélögin skulu vinna að því að auka ráðstöfunarfé Menningarráðs Austurlands hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum.
Árlegt framlag sveitarfélaganna til Menningarráðs Austurlands nemur 25 hundraðshlutum af þeirri heildarupphæð sem veitt er til verkefnastyrkja á samningstímanum.
Sveitarfélögin skulu greiða að lágmarki helming kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðs Austurlands árlega á samningstímanum.
5. gr.
Menningarmiðstöðvar
Á Austurlandi starfa fjórar menningarmiðstöðvar: Kirkju- og menningarmiðstöð í Fjarðabyggð með áherslu á tónleika og sýningarhald; Menningarmiðstöð á Fljótdalshéraði með áherslu á sviðslistir; Menningarmiðstöð Hornafjarðar með áherslu á bókmenntir, handverk og sýningar og Menningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði með áherslu á myndlist og sýningarhald.
6. gr.
Meðferð styrkumsókna
Menningarráð Austurlands úthlutar fjármagni til menningarverkefna á Austurlandi á grundvelli umsókna og gerir skriflega samninga um skyldur styrkhafa vegna þeirra verkefna sem hljóta styrk. Í samningum skulu koma fram markmið verkefna og hvaða mælikvarðar verða lagðir til grundvallar þegar árangur er metinn. Auglýst skal opinberlega eftir umsóknum um styrki.
Taka skal m.a. mið af eftirfarandi við afgreiðslu umsókna að:
atvinnustarfsemi á sviði lista verði efld;
samstarf um menningarmál á Austurlandi eflist;
tryggja aðgengi sem flestra að menningarstarfi;
bæta nýtingu fjármuna til málaflokksins;
efla menningartengda ferðaþjónustu á Austurlandi og styðja sérstaklega verkefni sem laðað geta að ferðamenn;
efla alþjóðlegt samstarf;
styðja við menningarhátíðir og viðburði í því skyni að auka menningarlega fjölbreytni;
auka stuðning við menningarstarf ungs og aldraðs fólks;
stofna til samstarfs við þjóðmenningarstofnanir og aðra aðila utan Austurlands;
efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.
Menningarráði Austurlands er heimilt að veita menningarmiðstöðvunum á Austurlandi, skv. 5. gr., árlega styrki til menningarstarfs af því framlagi sem ríkið veitir til samnings þessa, samkvæmt reglum sem Menningarráðið setur. Gerðir verði skriflegir samningar er kveði á um skyldur menningarmiðstöðvanna og mótframlag viðkomandi sveitarfélags eða rekstraraðila.
Samningur þessi kemur ekki í veg fyrir að menningarstofnanir, félög og einstaklingar, sem njóta styrkja á grundvelli þessa samnings, sæki um styrki til opinberra sjóða á menningarsviðinu.
8. gr.
Skýrslur um ráðstöfun styrkja
Menningarráð Austurlands skal í febrúarmánuði ár hvert senda menntamálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti skýrslu um framkvæmd samningsins þar sem m.a. er gerð grein fyrir skiptingu framlaga samkvæmt samningi þessum, hvernig sveitarfélögin hafi staðið við skuldbindingar sínar gagnvart samningnum, ásamt því sem árangur verkefna sem hlutu styrk er metinn.
9. gr.
Uppsögn og endurskoðun
Telji annar samningsaðili að hinn uppfylli ekki samningsbundnar skyldur sínar getur hann gert skriflega kröfu um að úr því verði bætt innan hóflegs frests. Sé ekki bætt úr annmörkum á framkvæmd samningsins getur samningsaðili sagt samningnum upp með 6 mánaða fyrirvara.
Samningsaðilar geta óskað eftir endurskoðun á einstökum ákvæðum samnings þessa á samningstímabilinu, ef sérstakt tilefni gefst.
Samningur þessi tekur gildi 9. janúar 2008 og gildir til 31. desember 2010. Heimilt er samningsaðilum að framlengja samninginn um tvö ár að loknu árangursmati sem fram skal fara vorið 2010. Matið skal framkvæmt af aðila sem samningsaðilar koma sér sameiginlega um.
Leysi samningsaðilar ekki ágreiningsmál sem rísa kann vegna samnings þessa skal það rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands.
Samningur þessi er gerður í fjórum samhljóða eintökum og heldur hver aðili sínu eintaki.
Framangreindu til staðfestu eru undirskriftir aðila.
Egilsstöðum, 9. janúar 2008
F.h. menntamálaráðuneytis
_________________________
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra
F.h. iðnaðarráðuneytis
____________________________
Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra
F.h. sveitarfélaganna á Austurlandi
__________________________
Björn Hafþór Guðmundsson
Formaður
Staðfest af hálfu fjármálaráðuneytis
__________________________
Árni M. Mathiesen
fjármálaráðherra
Til baka í allar tegundir