samning
Kvikmyndasafn mun vinna að því að verða sjálfu sér nægt í því að koma kvikmyndum á viðeigandi form, sem notað er á hverjum tíma, með því að eignast yfirfærslutæki fyrir hvert og eitt myndbandsform sem fyrir er og munu hverfa af markaði og verða af þeim sökum óaðgengileg til afspilunar og skoðunar. Einnig tæki til skönnunar á filmum yfir á stafrænt form.
Aðgengismál
Aðgengi að safninu er gott hvort sem um fatlaða eða ófatlaða er að ræða. Í Bæjarbíói, sem er safnabíó Kvikmyndasafns Íslands, er sérlega góður aðgangur fyrir hjólastóla við inngang hússins og í safninu sjálfu er aðgengi og salernisaðstaða sérstaklega hugsuð fyrir fatlaða. Í safninu verður aðstaða til að skoða efni á hvaða formi sem er, heimasíða þar sem aðgangur er að sýningarskrá, fréttum og upplýsingum um safnið og starfsemi þess. Auðvelt er að aðstoða þá sem eru að leita að efni við skoðun á öllu formi með aðgangi að gagnagrunni í tölvum þess, um safngripi, með aðstoð safnvarða.
Öryggismál og aðstaða starfsfólks
Húsnæði Kvikmyndasafnsins er nýstandsett og hefur öllum kröfum um brunavarnir o.þ.h. verið fullnægt. Safnið er búið öryggiskerfi, þ.e. þjófavörn, brunaviðvörun, vatnsviðvörun og auk þess er umhverfis húsið komið fyrir snjóbræðslukerfi sem hægt er að nota þegar um ísingu er að ræða. Starfsmenn hafa ýmist sérstakar læstar skrifstofur og/eða aðgang að læstum hirslum fyrir persónulega muni og fatnað og aðgang að vistlegri matstofu.
Endurmenntun
Starfsfólk safnins hefur á undanförnum árum sótt nokkur námskeið um m.a. heimasíðugerð, innleiðingu fjárhagskerfis, stofnanasamninga o.þ.h. Þá hafa einn eða fleiri starfsmenn sótt ráðstefnu Norrænu kvikmyndasafnanna einu sinni á ári og sömuleiðis alheimsráðstefnu FIAF, sem einnig er haldin einu sinni á ári og er þar boðið upp á fyrirlestra og erindi um safnstarfið. Stefnt er að því að færa endurmenntun í fastara form.
Jafnréttisstefna
Stefna safnsins er að greidd séu sömu laun fyrir sömu vinnu og má í því sambandi geta þess að allir safnverðir eru í sama launaflokki og njóta sömu kjara hjá stofnuninni. Jafnréttissjónarmiða er hvarvetna gætt í allri starfsemi stofnunarinnar.
Upplýsingatækni
Safnið gefur út vandaða sýningarskrá fyrir hvert sýningartímabil með ítarlegum upplýsingum um það sem sýnt er, ásamt lista yfir titla og tímatöflu. Safnið gefur út veggspjöld og bæklinga, þegar um er að ræða meiriháttar sýningar og viðburði. Þá hefur safnið nokkrum sinnum staðið að og tekið þátt í útgáfu bóka o.þ.h. um kvikmyndagerð og tengt efni. Á heimasíðu safnsins eru birtar fréttir úr safnstarfinu, um viðburði sem eru á dagskrá, um stefnu og starfsemi safnsins og markmið þess, verðskrá og annað sem að gagni má vera fyrir viðskiptavini og almenning. Ekki er hugsað fyrir aðgengi fyrir sjónskerta að heimasíðunni en úr því verður bætt. Safnið hefur undanfarið staðið að upptöku viðtala við íslenska kvikmyndagerðarmenn og aðila sem koma að kvikmyndagerðinni og hefur þegar verið hafin birting þeirra á heimsíðu safnsins. Gagnagrunnur safnsins er enn ekki aðgengilegur á netinu en stefnt er að því að listar yfir varðveitt efni verði aðgengilegir þegar lokið hefur verið við endurskráningu safnsins. Aðgangur að skráningarkerfi og bakgrunnsupplýsingum verður að sjálfsögðu lokaður.
5. Skyldur og ábyrgð
Á samningstímanum skulu Kvikmyndasafn Íslands og menntamálaráðuneyti standa skil á verkum sem hér segir:
5.1 Kvikmyndasafn Íslands:
· Fyrir 1. maí 2006 leggja fram drög að langtímaáætlun til næstu fimm ára um helstu verkefni, forgangsröðun og áherslur á tímabilinu 2006-2010, sbr. reglugerð nr. 1061/2004 um framkvæmd fjárlaga og ábyrgð á fjárreiðum ríkisstofnana í A-hluta..
· Í desember ár hvert skal skila ráðuneytinu ársáætlun fyrir næsta ár sem innihaldi bæði rekstraráætlun og tiltekin markmið og mælikvarða innan ársins á grundvelli langtímaáætlunar sbr. reglugerð nr. 1061/2004.
· Fyrir lok janúar ár hvert skal skila drögum að ársskýrslu til ráðuneytisins þar sem gerð er grein fyrir árangri í starfsemi stofnunarinnar undanfarið ár með samanburði við þau markmið sem birt eru í ársáætluninni ásamt fjárhagsuppgjöri. Í lokaskýrslu skal auk þess sem að framan greinir m.a. greina frá starfsmannamálum svo sem samsetningu og hreyfingu á starfsfólki.
· Kvikmyndasafn Íslands skal vera reiðubúið til samstarfs við aðrar menningar- og menntastofnanir eftir því sem tilefni gefast og hagkvæmt þykir fyrir báða aðila.
· Kvikmyndasafn Íslands skal gæta hagkvæmni í rekstri og starfa í samræmi við samning þennan og fjárlög.
5.2 Menntamálaráðuneyti:
· Þegar langtímaáætlun liggur fyrir skal ráðuneytið taka innan 30 daga afstöðu til markmiðssetninga, forgangsröðunar og mælikvarða sem þar koma fram.
· Samráðsfundir skulu haldnir minnst einu sinni á ári þar sem farið er yfir framgang umsaminna verkefna, áætlun næsta árs, ársskýrslu og fjárlagatillögur. Í kjölfar fundarins leggur menntamálaráðuneyti mat á árangur starfsemi Kvikmyndasafns Íslands. Mat þetta skal liggja fyrir eigi síðar en mánuði eftir að Kvikmyndasafn lætur ársskýrslu sína í té.
· Ráðuneytið mun vekja athygli Kvikmyndasafns Íslands á laga- og reglugerðarbreytingum er varða starfssvið stofnunarinnar og kunna að hafa áhrif á framkvæmd þeirra verkefna sem samningurinn nær til.
6. Mat og eftirlit á starfseminni
6.1 Tölulegir mælikvarðar
Í ársáætlunum safnins verða tilgreind töluleg markmið um innheimtu á skilaskyldu efni, skráningu, endurgerð og frágangs safnkosts auk sýninga í Bæjarbíói. Árangur verður síðan metinn í ársskýrslum.
6.2 Huglægt mat
Einu sinni á ári mun forstöðumaður ásamt starfsfólki meta starfsemi stofnunarinnar á undnangengnu ári með tilliti til ofangreindra atriða í tölulið 6.1. og annarra atriða skv. lögum og almennum markmiðum.
7. Gildistími og endurskoðun samnings
Samningurinn gildir fyrir tímabilið 1. janúar 2006 – 31. desember 2010. Heimilt er að endurskoða samninginn ef ófyrirséðar aðstæður valda því, að mati beggja samningsaðila, að ákvæði samningsins eru talin óraunhæf. Undirbúningur að endurnýjun samningsins skal hefjast a.m.k. þremur mánuðum áður en samningstíma lýkur.
Samningur þessi er gerður í tveimur samhljóða eintökum og heldur hvor aðili sínu.
________________________
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra
F.h. Kvikmyndasafns Íslands
__________________
Þórarinn Guðnason
forstöðumaður