Á forsíðu Senda póst
Nýtt efni
Nýtt efni
Tannheilsudeild
Tann-
heilsudeild
Fræðsluefni
Fræðsluefni
Rannsóknir
Rannsóknir
Aðrir vefir
Aðrir vefir
Prenta síðu
Prenta síðu

.

Velkomin/n á heimasíðu tannheilsudeildar HTR

Heimasíða tannheilsudeildar Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Tannverndarráðs var opnuð af heilbrigðisráðherra þann 21. september 2000. Með tilkomu síðunnar er ætlunin að bæta aðgengi að fræðsluefni um tennur, tannskemmdir, munnhirðu, sjúkdóma í munni o.fl. Síðunni er ætlað að þjóna almenningi jafnt sem fagaðilum á heilbrigðissviði.
Ritstjóri síðunnar er dr. Helga Ágústsdóttir tannlæknir og vefstjóri er Jóhanna Laufey Ólafsdóttir, tannfræðingur.

Ýmsar upplýsingar á síðunni



æææææ
Tannverndarráð er flutt á Lýðheilsustöð Laugavegi 116
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir tannfræðingur og Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir eru verkefnisstjórar á tannheilsusviði.
Síminn er 580-0900 og tölvupóstföng þeirra johanna@lydheilsustod.is og holmfridurg@lydheilsustod.is

NÝTT: Grein um tannlækningar á Norðurlöndunum
Grein eftir norrænu yfirtannlæknana um tannlækningakerfin á Norðurlöndunum. grein um norræna tannlækningakerfið

NÝTT: Nýleg samantekt um tannskekkjur og áhrif tannréttinga
Systematisk litteraturöversikt - frá Svíþjóð október 2005
Fulltext_tandreglering

Tannverndarvikan 2006
Hin árlega tannverndarvika var haldin 30. janúar til 5. febrúar 2006. Að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á mikilvægi góðrar tannhirðu.

Með tannverndarviku var fyrst og fremst ætlunin að vekja athygli á að það eru mikilvæg lífsgæði fyrir hvern einstakling að hafa heilbrigðar tennur og þar skiptir mestu að temja sér hollar neysluvenjur og góða tannhirðu.

Fræðsluefni og verkefni fyrir ýmsa aldurshópa hefur verið hægt að nálgast á heimasíðu Lýðheilsustöðvar frá og með 15. janúar s.l.
nánar

Tannverndarráð í samvinnu við Latabæ um Orkubókina
Íslensk börn eru talin vera með þeim þyngstu í heimi og markmið verkefnisins var að auka vitund þjóðfélagsins um vaxandi hreyfingarleysi og offitu barna á Íslandi. Átakið byggðist á því að börn og foreldrar ynnu saman að því að stuðla að heilbrigðara líferni.

Foreldrum var sendur samningur. Börnin fengu límmiða og orkubók sem sýndi hvernig fjölbreytt matarræði er. Þau gerðu einnig samning við foreldra sína um að borða hollan mat og hirða vel um tennur sínar. Börnin merktu síðan með límmiðum inn í bókina hvað þau borðuðu, hvernig þau hirtu tennurnar og hvernig þau hreyfðu sig í 30 daga.

Átakið hófst með öflugri kynningar- og auglýsingaherferð þar sem fram komu þekktir einstaklingar og þeir samstarfsaðilar sem stóðu að átakinu.
Einnig voru framleiddir fjölskylduþættir sem eru sýndir í Ríkissjónvarpinu samhliða átakinu auk umræðuþáttar um hollustu. Þættirnir voru byggðir upp sem skemmtiþættir fyrir fjölskylduna og var stjórnað af persónum úr Latabæ. Í þáttunum voru litlir leikþættir, tekin viðtöl við börn sem sögðu frá skemmtilegum hlutum og viðtöl við aðra sem tengdust átakinu.
Tengill á heimasíðu Latabæjar
>>>nánar

Leiðbeiningar um varnir gegn tannátu á Íslandi
Nýjar gagnreyndar leiðbeiningar um tannvernd sem unnar voru af vinnuhópi á vegum landlæknisembættisins
nánar

WHO Bulletin september 2005 - helgað umfjöllun um munnheilsu
Mánaðarrit alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar var helgað umfjöllun um munnheilsu í heiminum í septemberheftinu 2005. Hægt er að nálgast efni blaðsins á vefsíðu WHO
nánar

Varist bábiljur!
Því hefur nýlega verið haldið fram í íslenskum fjölmiðli að "munnangur tengist flúor í tannkremi". Þetta er alls ekki rétt og geta þessi skilaboð haft skaðleg áhrif þar sem forvarnargildi flúors í tannkremi er löngu sannað.
Hins vegar hefur verið sýnt fram á það í nokkrum rannsóknum að efnið natríum lauryl sulphate (SLS) sem stundum er notað í tannkrem hafi ertandi áhrif á slímhúð þeirra sem hætt er við munnangri. Rannsóknir sýna að sé þetta efni ekki í tannkreminu fá þeir einstaklingar sem það nota síður munnangur. Til eru tannkrem sem ekki innihalda SLS, en þau innihalda samt sem áður flúor sem er nauðsynlegur til varnar tannskemmdum. Sumar rannsóknir sýna að það er hægt að hreinsa munninn með vatni til að losna við SLS en því miður skolar vatnið flúornum líka í burtu og er sú aðferð því ekki ráðleg.
Engin ástæða er til að skipta yfir í tannkrem án flúors vegna munnangurs en nær væri að athuga hvort tannkremið innihaldi efnið SLS. Að auki er fjöldi annarra orsakaþátta, m.a. járnskortur, sem þarf að athuga ef munnangur er vandamál hjá einstaklingi.
Sú staðhæfing að flúor í tannkremi tengist munnangri hefur því ekki við nein rök að styðjast og getur hreinlega haft skaðleg áhrif á munnheilsu þeirra sem fara eftir þeim ráðum að nota flúorsnauð tannkrem því það stóreykur hættu á tannskemmdum.

Skyndihjálp vegna tannáverka
Mikilvægt er að bregðast fljótt og rétt við ef áverkar verða á fullorðinstennur. Tannverndarráð og tannheilsudeild Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins gaf út í samstarfi við Ásgeir Sigurðsson tannlækni, Tannlæknafélag Íslands og Rauða Kross Íslands, veggspjald með leiðbeiningum varðandi skyndihjálp vegna áverka á fullorðinstennur sem dreift var m.a. til grunnskóla, íþróttamiðstöðva, sundstaða og heilsugæslustöðva af tilefni tannverndarviku 2004.
Veggspjaldið er hægt að skoða og prenta út hér pdf skjal 350 KB >>nánar

Heimasíða IADT
Hér má finna ítarlegar upplýsingar fyrir tannlækna frá alþjóðlegum samtökum um tannáverka um viðbrögð við ýmis konar áverkum á tönnum.
>>nánar
Næsta þing IADT verður haldið hér í Reykjavík 5.-7. maí 2005 á hótel Nordicanánar


Skemmtilegt efni fyrir krakka
hér má finna ýmislegt skemmtilegt: t.d. myndir til að lita, krossgátur og gogg sem segir til um framtíðina!
fyrir 6-8 ára:
Gulli kanína mynd til að lita fyrir yngstu börnin
Marta mús mynd til að lita
hvað er hollt og hvað er óhollt
finna leiðina

fyrir 8-10 ára:
krossgáta fyrir 8-10 ára börn
ormur til að merkja inn á tannburstun

fyrir 10-12 ára:
goggur goggur fyrir 10-12 ára börn
stafarugl efni fyrir börn 10-12 ára

Bókin um barnatennurnar


Tannverndarráð hefur gefið út bókina um barnatennurnar sem ætluð er til að fræða börn og foreldra um munnheilsu barna á forskólaaldri. Í bókinni er að finna fræðslu um tannvernd allt frá því fyrsta barnatönnin verður sýnileg og þangað til fullorðinstennurnar byrja að koma upp. Bókin sem var upphaflega gefin út af Danska tannlæknafélaginu var þýdd og staðfærð af Helgu Ágústsdóttur tannlækni.

Með tilkomu bókarinnar vill Tannverndarráð vekja athygli foreldra yngri barna á því hversu mikilvægur þáttur tannvernd er í uppvexti barnsins.

Bókin er gjöf Tannverndarráðs til foreldra og barna þeirra og unnið verður að dreifingu hennar í samvinnu við Miðstöð heilsuverndar barna. Starfsfólk ungbarnaverndar mun afhenda bókina þegar börnin koma í reglulegt ungbarnaeftirlit. Bókin verður afhent við allar heimsóknir í ungbarnavernd í 5 mánaða, 6 mánaða, 8 mánaða, 10 mánaða, 12 mánaða, 18 mánaða og upp í 3 og hálfs árs skoðun til að byrja með.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun eiga öll börn á Íslandi undir 4 ára aldri að eiga þessa bók eftir u.þ.b. tvö ár og mun hún þá verða afhent ungbörnum í 5 mánaða skoðun eftir það.
Verður bókinni einnig dreift í bókasöfn, á heilsugæslustöðvar og á barnalækna- og tannlæknastofur.

Bókin um barnatennurnar. pdf - skjal 2MB

Bókin um barnatennurnar.pdf

Á heimasíðunni undir fræðsluefni - kennarahornið er að finna myndir úr bókinni sem hægt er að lita:
Teldu tennurnar þínar mynd nr. 1
Tanndísin skoðar tannburstana
mynd nr. 2
Tennurnar þarf að bursta fyrir svefninn
mynd nr.3
Takk fyrir að hjálpa mér að bursta
mynd nr. 4
Tanndísin og tannskemmdaskrímslið
mynd nr. 5

Vefsíða með hreyfimyndum sem svara ýmsum spurningum um munnheilsu
Tengill á vefsíðu frá Heilbrigðisráðuneyti Kuwait. Nýstárleg framsetning á tannverndarfræðslu með teiknimyndum og kvikmyndum >>nánar

Tengill á fræðslubækling um tannvernd ungbarna frá Zurich á ýmsum tungumálum
Oral health information in many different languages
nánar

Mikil sykur- og gosneysla Íslendinga
Ársneysla Íslendinga af sykri er meira en 50 kg að meðaltali. Neysla gosdrykkja er með því mesta sem gerist í heiminum. >>nánar

Flúor í forvarnarstarfi
Nýjustu ráðleggingar frá Center for Disease Control (CDC) um flúor í forvarnarstarfi gegn tannátu.
>>nánar

Forvarnir gegn tannátu hjá börnum á aldrinum 6-16 ára
Gagnagrundaðar leiðbeiningar frá Skotlandi um forvarnir gegn
tannátu í fullorðinstönnum barna á aldrinum 6 -16 ára unnið af
Scottish Intercollegiate Guidelines Network (SIGN)
>>nánar
Lýðheilsustöð
Lýðheilsustöð var stofnuð 1. júlí 2003. Undir stöðina heyra m.a. áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð, tóbaksvarnaráð, Árvekni og tannverndarráð.

Forstjóri Lýðheilsustöðvar er Anna Elísabet Ólafsdóttir.


Erlendar veftengingar
Meðal annars er þar að finna áhugaverða vefi fyrir börn og unglinga >>nánar

Smitgát á tannlæknastofum
Nýjustu ráðleggingar frá Center for Disease Control (CDC) varðandi
smitgát á tannlæknastofum. >>nánar

Tannvernd og flúor
Tilmæli frá Landlæknisembættinu varðandi tannvernd annars vegar og flúornotkun hins vegar
>>nánar
.
Samantekt um flúor
Upplýsingar teknar saman af Hólmfríði Guðmundsdóttur tannlækni - pdf skjal 572 KB>>nánar

Hollusta á heimavelli
Kalt og svalandi vatn ætti að vera alls staðar aðgengilegt þar sem börn eru við leik og störf.
Grein sem birtist í Morgunblaðinu 5. júlí 2002 >>nánar

Glerungseyðandi drykkir á íslenskum markaði
Greinin birtist í Læknablaðinu 7./8. tbl. 88. árg. 2002
meira
.
Fræðsluefni um tannvernd yngri barna.
Miðstöð tannverndar hefur gefið út fræðslubækling og veggspjald um tannvernd yngri barna.
Fræðsluefnið inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir foreldra og aðra uppalendur um helstu þætti tannverndar barna s.s. tanntaka og tannskipti, mataræði, munnhirða og flúor. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Heilsugæslu Reykjavíkur >>nánar<<

Áhugaverðar greinar á Doktor.is um nesti skólabarna
Gott nesti - lykill að góðri líðan >>nánar
Vort daglegt brauð >>nánar
Matarframboð í skólum hefur áhrif á heilsufar þjóðarinnar >>nánar

Áhugaverð grein um glerungseyðingu á Doktor.is >>nánar

Upplýsingar frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni WHO
Ýmsar upplýsingar um tannheilsu, tannvernd og rannsóknir -
WHO - World Health Organisation. >>nánar
.
Námskeið um sjúkdóma í munnholi
Námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að læra að þekkja sjúkdóma í munnholi og hvernig á að hjálpa skjólstæðingum þeirra að hætta að nota tóbak
Unnið af Voices of Detroit Initiative í samvinnu við University of Michigan í BNA. >>nánar
.
Krabbamein í munnholi
Síða sérstaklega ætluð sjúklingum og heilbrigðisstarfsmönnum með ráðleggingum varðandi ýmsa þætti krabbameinsmeðferðar í munnholi. >>nánar