prentvæn útgáfa B.2. Yfirlýsing

YFIRLÝSING
RÍKISSTJÓRNA AÐILDARRÍKJA EB OG EFTA-RÍKJANNA
UM PÓLITÍSK SKOÐANASKIPTI
Evrópubandalagið og aðildarríki þess og aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu létu í ljósi þá ósk sína að efla pólitísk skoðanaskipti sín um utanríkismál með það fyrir augum að koma á nánari tengslum í sameiginlegum hagsmunamálum.
Þau samþykktu í þessu skyni:
– að ráðherrar skiptust óformlega á skoðunum á fundum EES-ráðsins. Þegar við á gætu yfirmenn stjórnarskrifstofa undirbúið þessi skoðanaskipti með fundum;
– að nýta til fulls þær diplómatísku leiðir sem nú eru tiltækar, einkum diplómatískt fyrirsvar í höfuðborg landsins sem fer með forsæti í EB, í Brussel og höfuðborgum EFTA-ríkjanna;
– að hafa óformlegt samráð á ráðstefnum og í alþjóðastofnunum;
– að þetta hefði á engan hátt áhrif á né kæmi í stað núverandi tvíhliða tengsla á þessu sviði.