Þegar framleiðsluvörur sem samningurinn tekur til og eru upprunnar á EES eru fluttar inn til Ceuta og Melilla skulu þær að öllu leyti njóta sömu tollameðferðar og þær framleiðsluvörur sem eru upprunnar á tollsvæði bandalagsins samkvæmt bókun 2 við lögin um aðild Konungsríkisins Spánar og Lýðveldisins Portúgals að Evrópubandalögunum. EFTA-ríkin skulu veita innfluttum framleiðsluvörum sem samningurinn tekur til og eru upprunnar í Ceuta og Melilla sömu tollameðferð og framleiðsluvörur hljóta sem eru fluttar inn frá og upprunnar á EES.