prentvæn útgáfa ID-Bókun 38

BÓKUN 38
UM FJÁRMAGNSKERFIÐ

1. gr.

1. Fjármagnskerfið skal veita fjárhagsaðstoð til þróunar og uppbyggingar á svæðunum sem um getur í 4. gr., annars vegar með vaxtaafslætti á lánum og hins vegar með beinum styrkjum.

2. EFTA-ríkin skulu fjármagna fjármagnskerfið. Þau skulu veita Fjárfestingarbanka Evrópu umboð og skal hann fara með það umboð í samræmi við eftirfarandi greinar. EFTA-ríkin skulu koma á fót nefnd um fjármagnskerfi sem tekur ákvarðanir í samræmi við 2. og 3. gr. um vaxtaafslátt og styrki.
2. gr.
1. Vaxtaafsláttinn sem kveðið er á um í 1. gr. skal veita af lánum frá Fjárfestingarbanka Evrópu og skal hann tilgreindur, eftir því sem kostur er, í evrópskum mynteiningum (ECU).

2. Vaxtaafsláttur af slíkum lánum skal vera [tvö]1) prósentustig, á ári, af vaxtaprósentu Fjárfestingarbanka Evrópu og veitast í tíu ár vegna hvers láns.

1) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.

3. Veita skal greiðslufrest í tvö ár áður en jafnar endurgreiðslur lánsins hefjast.

4. Vaxtaafslátturinn er háður samþykki nefndar EFTA um fjármagnskerfi og áliti framkvæmdastjórnar EB.

5. [Heildarupphæð lána sem til greina koma vegna vaxtaafsláttarins sem kveðið er á um í 1. gr. skal vera 1 500 milljónir ECU og skal þeim skipt í jafna hluta yfir fimm ára tímabil frá 1. júlí 1993. Gangi EES-samningurinn í gildi eftir þann dag skal tímabilið vera fimm ár frá gildistökunni.]2)

2) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
3. gr.
1. [Heildarupphæð styrkja sem kveðið er á um í 1. gr. skal vera 500 milljónir ECU, sem skiptist í jafna hluta yfir fimm ára tímabil frá 1. júlí 1993. Gangi EES-samningurinn í gildi eftir þann dag skal tímabilið vera fimm ár frá gildistökunni.]3)

3) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.

2. Fjárfestingarbanki Evrópu skal ráðstafa þessum styrkjum, samkvæmt tillögum þeirra aðildarríkja EB sem njóta styrkjanna, eftir að hafa leitað álits framkvæmdastjórnar EB og fengið samþykki nefndar EFTA um fjármagnskerfi, en henni skal veita upplýsingar á öllum stigum málsins.
4. gr.
1. Fjárhagsaðstoðin sem kveðið er á um í 1. gr. skal takmarkast við verkefni á vegum stjórnvalda og opinberra fyrirtækja eða einkafyrirtækja í Grikklandi, á eyjunni Írlandi, í Portúgal og á þeim svæðum á Spáni sem skráð eru í viðbætinum. Bandalagið skal ákveða hve stór hluti af fjárhagsaðstoðinni rennur til hvers svæðis og tilkynna EFTA-ríkjunum þar um.

2. Þau verkefni hafa forgang þar sem lögð er sérstök áhersla á umhverfið (að meðtöldu skipulagi þéttbýlis), samgöngur (að meðtöldum samgöngumannvirkjum) eða á menntun og þjálfun. Við úthlutun verkefna til einkafyrirtækja skal einkum tekið tillit til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

3. Hámarksstyrkur sem veittur er af fjármagnskerfinu til einstakra verkefna skal ákveðinn í samræmi við stefnu EB í slíkum efnum.
5. gr.
EFTA-ríkin skulu semja við Fjárfestingarbanka Evrópu og framkvæmdastjórn EB um fyrirkomulag sem báðir aðilar telja viðeigandi til að tryggja snurðulausa starfsemi fjármagnskerfisins. Meðal annars skal kostnaður vegna fjármögnunar kerfisins ákveðinn í þessu samhengi.
6. gr.
Fjárfestingarbanki Evrópu skal hafa rétt til að eiga áheyrnarfulltrúa á fundum sameiginlegu EES-nefndarinnar þegar mál tengd fjármagnskerfinu sem við koma Fjárfestingarbanka Evrópu eru á dagskrá.
7. gr.
Sameiginlega EES-nefndin getur sett frekari ákvæði um framkvæmd fjármagnskerfisins, eftir því sem nauðsyn krefur.
VIÐBÆTIR VIÐ BÓKUN 38

Skrá yfir þau svæði á Spáni sem koma til greina
Andalúsía
Asturias
Castilla y León
Castilla og La Mancha
Ceuta og Melilla
Valencia
Extremadura
Galisía
Kanaríeyjar
Murcia