prentvæn útgáfa ID-Bókun 36

BÓKUN 36
UM STOFNSAMÞYKKT SAMEIGINLEGU EES-ÞINGMANNANEFNDARINNAR

1. gr.

Sameiginlega EES-þingmannanefndin, stofnuð samkvæmt 95. gr. samningsins, skal skipuð og hún starfa í samræmi við ákvæði samningsins og þessarar stofnsamþykktar.
2. gr. {1}

{1} Sjá samþykktir.
[Sameiginlegu EES-þingmannanefndina skulu skipa alls tuttugu og fjórir nefndarmenn.]*)
*) EES-stækkunarsamningur. (EES-viðbætir 23/1, 29.4.2004). Gildistaka 1.5.2004.

Evrópuþingið og þjóðþing EFTA-ríkjanna skulu tilnefna jafn marga menn til setu í sameiginlegu EES-þingmannanefndinni.
3. gr.
Sameiginlega EES-þingmannanefndin skal kjósa sér formann og varaformann úr röðum nefndarmanna. Evrópuþingið og þjóðþing EFTA-ríkis skulu til skiptis tilnefna formann nefndarinnar til eins árs í senn.

Nefndin skipar sér forsætisnefnd.
4. gr.
Sameiginlega EES-þingmannanefndin skal halda almenna nefndarfundi tvisvar á ári í bandalaginu og EFTA-ríki á víxl. Nefndin ákveður á hverjum fundi fyrir sig hvar næsti almenni nefndarfundur verður haldinn. Heimilt er að halda sérstaka fundi með ákvörðun nefndarinnar eða forsætisnefndar hennar í samræmi við starfsreglur nefndarinnar.
5. gr.
Sameiginlega EES-þingmannanefndin skal samþykkja starfsreglur sínar með meirihluta sem nemur tveimur þriðju hlutum atkvæða nefndarmanna.
6. gr.
Kostnaður sá er fylgir þátttöku í sameiginlegu EES-þingmannanefndinni skal greiddur af því þjóðþingi sem tilnefnir aðila í nefndina.