prentvæn útgáfa ID-Bókun 30

BÓKUN 30{1} *)
UM SÉRSTÖK ÁKVÆÐI VARÐANDI SKIPULAGNINGU
SAMVINNU Á SVIÐI HAGSKÝRSLUGERÐAR


[1. gr.
Almenn ákvæði

1. Ráðstefna fulltrúa frá hagstofum samningsaðila, Hagstofu Evrópubandalaganna (Eurostat) og hagskýrsluskrifstofu EFTA (ESO) skal leiða samstarf á sviði hagskýrslugerðar og semja áætlanir og verklagsreglur fyrir slíkt samstarf í góðu samræmi við áætlanir og verklagsreglur bandalagsins og fylgjast með framkvæmd þeirra. Þessi ráðstefna og hagskýrsluáætlunarnefndin (HÁN) skulu skipuleggja störf sín í tengslum við bókun þessa á sameiginlegum fundum með heitinu HÁN/EES-ráðstefna í samræmi við sérstakar starfsreglur sem HÁN/EES-ráðstefnan setur.

2. EFTA-ríkin skulu frá upphafi samstarfs um áætlanir og aðgerðir, sem um getur í bókun þessari, taka fullan þátt í starfi EB-nefnda og annarra stofnana sem eru framkvæmdastjórn EB til aðstoðar við stjórnun og mótun þessara áætlana og aðgerða, þó án atkvæðisréttar.

3. Hagskýrsluupplýsingar EFTA-ríkjanna skulu sendar Hagstofu Evrópubandalagsins til varðveislu, vinnslu og dreifingar. Í þessu skyni skal ESO sjá til þess í náinni samvinnu við EFTA-ríkin og Eurostat að gögn frá EFTA-ríkjunum séu send á réttan hátt og að þeim sé dreift til einstakra notendahópa eftir venjulegum leiðum sem hluta af EES-hagskýrslum.

4. EFTA-ríkin skulu bera þann aukakostnað sem Eurostat hefur af varðveislu, vinnslu og dreifingu gagna frá þeim löndum.

5. EFTA-ríkin skulu greiða hluta af almennum útgjöldum bandalagsins vegna þátttöku þessara ríkja í áætlunum og aðgerðum sem um getur í bókun þessari, öðrum en þeim sem tengjast varðveislu, dreifingu og vinnslu gagna í samræmi við staflið b) í 1. mgr. 82. gr. samningsins.

6. Um meðferð hagskýrslna frá EFTA-ríkjunum skal fara eftir ákvæðum reglugerðar ráðsins (EB) nr. 322/97 frá 17. febrúar 1997 um hagskýrslur bandalagsins (Stjtíð. EB L 52, 22.2.1997, bls. 1).

7. ESO og Eurostat skulu semja árlega sameiginlega skýrslu þar sem lagt er mat á árangur af markmiðum, forgangsröðun og aðgerðum samkvæmt bókun þessari og skal skýrslan lögð fyrir HÁN/EES-ráðstefnuna sem um getur í 1. mgr. og sameiginlegu EES-nefndina.

2. gr.
Hagskýrsluáætlun 2003 til 2007

1. Hagskýrsluáætlun bandalagsins 2003 til 2007, sbr. ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins sem um getur í 4. mgr., skal lögð til grundvallar aðgerðum EES á sviði hagskýrslna frá 1. janúar 2003 til 31. desember 2007. Öll meginsvið og hagskýrsluefnissvið í hagskýrsluáætlun bandalagsins 2003 til 2007 teljast skipta máli fyrir hagskýrslusamstarf EES og geta EFTA-ríkin tekið fullan þátt í þeim.

2. Frá 1. janúar 2003 skal hagskýrsluskrifstofa EFTA semja ár hvert sérstaka árlega hagskýrsluáætlun EES í samráði við starfshóp hagstofustjóra EFTA-ríkjanna. Hin árlega hagskýrsluáætlun EES skal samin sem hlutmengi og hliðstæða árlegrar vinnuáætlunar sem framkvæmdastjórnin tekur saman í samræmi við ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins sem um getur í 4. mgr.

3. Frá 1. janúar 2003 skulu EFTA-ríkin greiða framlag í samræmi við staflið a) í 1. mgr. 82. gr. samningsins og tilheyrandi fjárhagsreglugerðir sem nemur 75 % af fjárhæðinni sem tilgreind er í fjárlagaliðum B5-600A og B5-600B eða liðum sem tekið hafa við af þeim (Stefna á sviði hagskýrslugagna) í fjárlögum bandalagsins.

4. Eftirfarandi lagagerðir Evrópubandalagsins varða þessa bókun:
      32002D2367: Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2367/2002/EB frá 16. desember 2002 um hagskýrsluáætlun bandalagsins 2003 til 2007 (Stjtíð. EB L 358, 31.12.2002, bls. 1) eins og henni var breytt með:

        32004D0787: Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 787/2004/EB frá 21. apríl 2004 (Stjtíð. ESB L 138, 30.4.2004, bls. 12).

3. gr.
Hagskýrsluáætlun 2008 til 2012

1. Hagskýrsluáætlun bandalagsins 2008 til 2012, sbr. ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins sem um getur í 4. mgr., skal lögð til grundvallar aðgerðum EES á sviði hagskýrslna frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Öll meginsvið og hagskýrsluefnissvið í hagskýrsluáætlun bandalagsins 2008 til 2012 teljast skipta máli fyrir hagskýrslusamstarf EES og geta EFTA-ríkin tekið fullan þátt í þeim.

2. Frá 1. janúar 2008 skulu hagskýrsluskrifstofa EFTA og Eurostat semja sameiginlega ár hvert sérstaka árlega hagskýrsluáætlun EES. Hin árlega hagskýrsluáætlun EES skal samin sem hlutmengi og hliðstæða árlegrar vinnuáætlunar sem framkvæmdastjórnin tekur saman í samræmi við ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins sem um getur í 4. mgr. Samþykkt hinnar árlegu hagskýrsluáætlunar EES skal eiga sér stað í samræmi við eigin málsmeðferð hvers samningsaðila um sig.

3. Frá 1. janúar 2008 skulu EFTA-ríkin greiða framlag í samræmi við staflið a) í 1. mgr. 82. gr. samningsins og tilheyrandi fjárhagsreglugerðir sem nemur 75 % af fjárhæðinni sem tilgreind er í fjárlagaliðum 29 02 03 og 29 01 04 01 (Stefna á sviði hagskýrslugagna) í fjárlögum bandalagsins.

4. Eftirfarandi lagagerð Evrópubandalagsins varðar þessa bókun:
      32007D1578: Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1578/2007/EB frá 11. desember 2007 um hagskýrsluáætlun Bandalagsins 2008 til 2012 (Stjtíð. ESB L 344, 28.12.2007, bls. 15).]*)
    *) Ákvörðun nr. 75/2008. (EES-viðbætir 58/23, 25.9.2008). Gildistaka: 7.6.2008.