prentvæn útgáfa ID-Bókun 29

BÓKUN 29
UM STARFSÞJÁLFUN

Til þess að stuðla að hreyfanleika ungs fólks innan EES samþykkja samningsaðilar að efla samstarf sín á milli á sviði starfsþjálfunar og leitast við að bæta skilyrði námsmanna sem vilja stunda nám í öðru ríki en sínu eigin. Í þessu samhengi samþykkja þeir að ákvæði samningsins um búseturétt námsmanna breyti ekki möguleikum einstakra samningsaðila, sem við lýði eru fyrir gildistöku samningsins, t.d. varðandi innheimtu skólagjalda af erlendum námsmönnum.