prentvæn útgáfa ID-Bókun 26

BÓKUN 26
UM VALDSVIÐ OG STÖRF EFTIRLITSSTOFNUNAR EFTA Á SVIÐI RÍKISAÐSTOÐAR



[1. gr.


Með samningi milli EFTA-ríkjanna skal eftirlitsstofnun EFTA falið sams konar valdsvið og svipuð störf og framkvæmdastjórn EB hefur, við undirritun samningsins, við beitingu samkeppnisreglna um ríkisaðstoð í stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu, sem geri eftirlitsstofnun EFTA kleift að framkvæma þær meginreglur sem settar eru fram í e-lið 2. mgr. 1. gr., 49. og 61. – 63. gr. samningsins. Eftirlitsstofnun EFTA skal einnig hafa slíkt vald við beitingu samkeppnisreglna um ríkisaðstoð varðandi framleiðsluvörur sem falla undir stofnsáttmála Kola- og stálbandalags Evrópu eins og um getur í bókun 14.
2. gr.

Auk þeirra gerða sem um getur í XV. viðauka [endurspegla eftirfarandi gerðir]*) valdsvið og störf framkvæmdastjórnar EB við beitingu samkeppnisreglna um ríkisaðstoð í stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu:
*)Ákvörðun nr. 123/2005. (EES-viðbætir 66/18, 22.12.2005). Gildistaka: 1.10.2005.

      [1.] **) 399R0659: Reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999 frá 22. mars 1999 um ítarlegar reglur um beitingu 93. gr. EB-sáttmálans (Stjtíð. EB L 83, 27.3.1999, bls. 1)[, eins og henni var breytt með:
          1 03 T: Lög um aðildarskilmála Lýðveldisins Tékklands, Lýðveldisins Eistlands, Lýðveldisins Kýpur, Lýðveldisins Lettlands, Lýðveldisins Litháens, Lýðveldisins Ungverjalands, Lýðveldisins Möltu, Lýðveldisins Póllands, Lýðveldisins Slóveníu og Lýðveldisins Slóvakíu og aðlögun sáttmálanna sem mynda grundvöll Evrópu­sambandsins, samþykkt 16. apríl 2003. (Stjtíð. ESB L 236, 23.9.2003, bls. 33).]*)
          *) EES-stækkunarsamningur. (EES-viðbætir 23/1, 29.4.2004). Gildistaka 1.5.2004.
      [2. 32004R0794: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 794/2004 frá 21. apríl 2004 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 659/1999 um ítarlegar reglur um beitingu 93. gr. EB-sáttmálans (Stjtíð. ESB L 61, 8.3.2005, bls. 3), með leiðréttingum sem birtust í Stjtíð. ESB L 25, 28.1.2005, bls. 74, og Stjtíð. ESB L 131, 25.5.2005, bls. 45.]**)

      **)Ákvörðun nr. 123/2005. (EES-viðbætir 66/18, 22.12.2005). Gildistaka: 1.10.2005.


]*)
*)Ákvörðun nr. 164/01. (EES-viðbætir 13/26, 7.3.2002). Gildistaka: 12.12.2001.