|
BÓKUN 17 Samningsaðilum ber í öllum öðrum tilvikum að upplýsa sameiginlegu EES-nefndina um ráðstafanirnar og leitast við, eftir því sem þörf krefur, að samþykkja ákvæði er tryggi að ráðstafanirnar séu ekki sniðgengnar á yfirráðasvæðum annarra samningsaðila. Ef ekki tekst að komast að samkomulagi um slíkar reglur eða ákvæði getur hlutaðeigandi samningsaðili gripið til ráðstafana sem nauðsynlegar kunna að reynast til að koma í veg fyrir sniðgöngu. 2. Þegar skilgreint er hverjir eigi að njóta þeirra réttinda sem leiða af 34. gr. gildir I. bálkur almennu áætlunarinnar um afnám hafta á staðfesturétti (Stjtíð. EB nr. 2, 15.1. 1962, bls. 36/62) með sömu réttaráhrifum og innan bandalagsins. | ||||