prentvæn útgáfa ID-Bókun 16

BÓKUN 16 {1}
UM RÁÐSTAFANIR Á SVIÐI FÉLAGSLEGS ÖRYGGIS VARÐANDI AÐLÖGUNARTÍMABIL VEGNA
FRJÁLSRA FÓLKSFLUTNINGA
([...]
1) LIECHTENSTEIN)

{1} Sjá samþykktir.
1) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
1. gr.
Við beitingu þessarar bókunar og reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 frá 14. júní 1971, um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja (Stjtíð. EB nr. L 149, 5.7. 1971, bls. 416), merkir „launþegi sem vinnur árstíðabundin störf“, að því er varðar [...]2) Liechtenstein, hvern þann launþega sem er ríkisborgari aðildarríkis EB eða annars EFTA-ríkis og hefur undir höndum árstíðabundið leyfi í skilningi innlendrar löggjafar [...]2) Liechtensteins sem gildir í hæsta lagi í níu mánuði.

2) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
2. gr.
Á gildistíma leyfisins skal launþegi sem vinnur árstíðabundin störf eiga rétt á atvinnuleysisbótum í samræmi við gildandi löggjöf í [...]3) Liechtenstein og í samræmi við ákvæði reglugerðar (EBE) nr. 1408/71.

3) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
3. gr.
Hluti af atvinnuleysisiðgjöldum launþega sem vinna árstíðabundin störf skal endurgreiddur af [...]4) Liechtenstein til búseturíkja þessara launþega í samræmi við eftirfarandi málsmeðferð:

4) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.

a) Heildarfjárframlag til hvers ríkis skal ákvarðað með tilliti til fjölda launþega sem vinna árstíðabundin störf og eru ríkisborgarar þess ríkis en dveljast í [...]
5) Liechtenstein í ágústlok, til jafnaðarlengdar árstíðabundinnar vertíðar, til kaupsins og þeirra iðgjalda sem tilskilin eru samkvæmt atvinnuleysistryggingum í [...]5) Liechtenstein (hlutdeild vinnuveitanda og launþega).

5) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.

b) Fjárhæðin sem hverju ríki er endurgreidd skal samsvara fimmtíu hundraðshlutum af heildarfjárframlögunum sem reiknuð eru samkvæmt a-lið.


c) Endurgreiðsla skal einungis fara fram þegar heildarfjöldi þeirra launþega sem vinna árstíðabundin störf og eru búsettir í hlutaðeigandi ríki er meiri, á viðmiðunartímabilinu, en [...]
6) fimmtíu [...]6).

6) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
4. gr.

[...]7)

7) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
5. gr.
Gildistími þessarar bókunar takmarkast við lengd aðlögunartímabilanna eins og þau eru skilgreind í bókun 15.