|
BÓKUN 14 sem gerðir voru milli Kola- og stálbandalags Evrópu og aðildarríkja þess annars vegar og einstakra EFTA-ríkja hins vegar eða, eftir atvikum, milli aðildarríkja Kola-og stálbandalags Evrópu og einstakra EFTA-ríkja. 2. gr. 1. Fríverslunarsamningarnir skulu haldast óbreyttir nema kveðið sé á um annað í þessari bókun. Ákvæði þessa samningsgilda þegar fríverslunarsamningarnir gilda ekki. Gildi efnisákvæði fríverslunarsamninganna áfram gilda ákvæði þeirra um stofnanir einnig. 2. Afnema skal magntakmarkanir á útflutningi, ráðstafanir sem hafa sambærileg áhrif og tolla og gjöld sem hafa sambærileg áhrif, er gilda í viðskiptum innan Evrópska efnahagssvæðisins. 3. gr. Samningsaðilar skulu ekki koma á neinum þeim höftum eða stjórnunar- og tæknilegum reglugerðum sem gætu íviðskiptum samningsaðila hindrað frjálsa vöruflutninga samkvæmt þessari bókun. 4. gr. Meginatriði samkeppnisreglna er gilda um fyrirtæki varðandi vörur sem bókun þessi nær til er að finna í bókun 25.Afleiddar réttarreglur er að finna í bókun 21 og XIV. viðauka. 5. gr. Samningsaðilar skulu fara að reglum um aðstoð við stáliðnaðinn. Einkum fallast þeir á mikilvægi, og samþykkja reglurbandalagsins um aðstoð við stáliðnaðinn eins og ákveðið er í ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 322/89/KSE sem fellur úr gildi 31. desember 1991. Samningsaðilar lýsa áformi sínu um að setja inn í EES-samninginn nýjar reglur bandalagsins um aðstoð við stáliðnaðinn með gildistöku samningsins, að því tilskildu að þær séu efnislega líkar reglum framangreindrar gerðar. 6. gr. 1. Samningsaðilar skulu skiptast á upplýsingum um markaði. EFTA-ríkin skulu leitast við af fremsta megni að tryggja aðstálframleiðendur, neytendur og kaupmenn veiti slíkar upplýsingar. 2. EFTA-ríkin skulu af fremsta megni leitast við að tryggja að stáliðnaðarfyrirtæki með staðfestu á yfirráðasvæði þeirra taki þátt í árlegum könnunum varðandi þær fjárfestingar sem um getur í 15. gr. ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar nr. 3302/81/KSE frá 18. nóvember 1981. Samningsaðilar munu, með fyrirvara um kröfur um viðskiptaleynd, skiptast á upplýsingum um mikilvæg verkefni er varða fjárfestingu eða afnám fjárfestingar. 3. Í hinum almennu ákvæðum samningsins um stofnanir skal gert ráð fyrir öllum þeim málefnum sem tengjast upplýsingaskiptum milli samningsaðila. 7. gr. Samningsaðilar athugi að bókun 4 í þessum samningi kemur í staðinn fyrir upprunareglur sem ákvarðaðar eru í bókun 3í fríverslunarsamningum milli Efnahagsbandalags Evrópu og einstakra EFTA-ríkja. | ||||