|
BÓKUN 13 {1} Beiting 26. gr. þessa samnings á aðeins við þau svið sem ákvæði hans taka til og þar sem réttarreglur bandalagsins teljast óaðskiljanlegur hluti samningsins. Enn fremur, nema samningsaðilar komi sér saman um aðrar lausnir, hefur beiting hennar áhrif á þær ráðstafanir sem samningsaðilar kunna að grípa til í því skyni að koma í veg fyrir að eftirfarandi ráðstafanir sem beinast að þriðju löndum séu sniðgengnar: — ráðstafanir gegn undirboðum; — jöfnunartollar; — ráðstafanir gegn ólöglegum viðskiptaháttum sem rekja má til þriðju landa. | ||||