prentvæn útgáfa ID-Bókun 12

BÓKUN 12
UM SAMNINGA VIÐ ÞRIÐJU LÖND UM SAMRÆMISMAT

Bandalagið hefur frumkvæði að því að semja við þriðju lönd um gagnkvæma viðurkenningu samræmismats á afurðum ef nota skal vörumerki samkvæmt löggjöf Evrópubandalagsins. Bandalagið mun semja á þeim grundvelli að hlutaðeigandi þriðju
lönd geri samhliða samninga við EFTA-ríkin um gagnkvæma viðurkenningu sem verði sambærilegir við þá sem gerðir verða við bandalagið. Samningsaðilar skulu vinna saman í samræmi við þær almennu reglur um upplýsingar og samráð sem settar
eru fram í EES-samningnum. Komi upp ágreiningur í sambandi við þriðju lönd verður fjallað um hann samkvæmt viðeigandi ákvæðum EES-samningsins.