prentvæn útgáfa ID-Bókun 06

BÓKUN 6
UM SÖFNUN LÖGBOÐINS VARAFORÐA
[Í LIECHTENSTEIN

Þegar alvarlegur birgðaskortur ríkir Liechtenstein má fella inn í áætlun um lögboðinn varaforða nauðsynlegar framleiðsluvörur fyrir lífsafkomu þegnanna séu þær ekki framleiddar í nægilega ríkum mæli eða alls ekki í Liechtenstein og eru þess eðlis að hægt er að geyma þær sem varaforða.

Í Liechtenstein skal, við framkvæmd þessarar áætlunar, hvorki með beinum né óbeinum hætti gert upp á milli innfluttra framleiðsluvara frá hinum samningsaðilunum og innlendra framleiðsluvara sem eru svipaðar eða koma í stað þeirra framleiðsluvara sem um ræðir.]
1)

1) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.