prentvæn útgáfa ID-Bókun 05

BÓKUN 5
UM FJÁRÖFLUNARTOLLA


(Liechtenstein [...]
1))

1) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
1. Með fyrirvara um 2. mgr. þessarar bókunar mega Liechtenstein [...]2) viðhalda tímabundið fjáröflunartollum á framleiðsluvörum sem falla undir tollskrárnúmer sem tilgreind eru í meðfylgjandi töflu enda uppfylli þau skilyrði 14. gr. samningsins. Að því er varðar nr. 0901 og úr 2101 skal afnema þessa tolla í síðasta lagi 31.12.1996.

2) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.

2. Þegar framleiðsla hefur hafist í [...]3) Liechtenstein á svipaðri framleiðsluvöru og skráð er í töflunni verður að afnema fjáröflunartollinn sem lagður er á síðarnefndu framleiðsluvöruna.

3) Bókun um breytingu á EES-samningnum, 17. mars 1993.
3. Sameiginlega EES-nefndin skal kanna ástandið fyrir árslok 1996.
Tafla

Tollskrár- Vörulýsing
númer


0901 Kaffi, einnig brennt eða koffeínsneytt; kaffiskurn og kaffihýði; kaffilíki sem inniheldur eitthvað af kaffi (á fjögurra ára aðlögunartímabili)

úr 2101 Kjarni, kraftur og seyði úr kaffi, og framleiðsla að stofni til úr þessum kjarna, krafti og seyði (á fjögurra ára aðlögunartímabili)


2707. 1010/9990
2709. 0010/0090
2710. 0011/0029
Jarðolíur og vörur eimdar úr þeim


2711. 1110/2990 Jarðolíugas og annað loftkennt kolvetni úr öllum köflum tollskrárinnar Vörur notaðar sem vélældsneyti

úr 8407 Stimpil-eða hverfibrunahreyflar með neista-kveikju, fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8702. 9010, 8703. 1000/2420, 9010/9030, 8704. 3110/3120, 9010/9020


úr 8408 Stimpilbrunahreyflar með þrýstikveikju (dísil-eða hálfdísilhreyflar), fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8702. 1010, 8703. 1000, 3100/3320, 8704. 2110/2120


úr 8409 Hlutar eingöngu eða aðallega nothæfir til hreyfla í nr. 8407 eða 8408: – Strokkstykki og strokklok fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8702. 1010, 9010. 8703. 1000/2420, 3100/3320, 8704. 2110/2120, 3110/3120


úr 8702 Almenningsbifreiðar, sem hver um sig vegur ekki meira en 1600 kg


úr 8703 Bifreiðar og önnur vélknúin ökutæki aðallega gerð til fólksflutninga (þó ekki ökutæki í nr. 8702), þar með taldir skutbílar og
kappakstursbílar


úr 8704 Ökutæki til vöruflutninga sem hvert um sig vegur ekki meira en 1600 kg


úr 8706 Grindur með hreyfli fyrir vélknúin ökutæki í0 nr. 8702. 1010, 9010, 8703. 1000/9030, 8704. 2110/2120, 3110/3120, 9010/9020


úr 8707 Yfirbyggingar (einnig ökumannshús) fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8702. 1010, 9010, 8703. 1000/9030, 8704. 2110/2120, 3110/3120, 9010/9020


úr 8708 Hlutar og fylgihlutar fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8702. 1010, 9010, 8703. 1000/9030, 8704. 2110/2120, 3110/3120, 9010/9020:


1000 – Stuðarar og hlutar til þeirra


2990 – Aðrir hlutar og fylgihlutar til yfirbygginga (einnig til ökumannshúsa), aðrir en í nr. 8708. 1000/2010, þó ekki farangursgrindur, númeraplötur og skíðagrindur; – Hemlar og afhemlar og hlutar til þeirra:


3100 – Áfestir bremsuborðar


3990 – Annað en þrýstiloftsgeymar, fyrir bremsur


4090 – Gírkassar


5090 – Driföxlar með mismunadrifi, einnig búið öðrum diskskiptibúnaði


6090 – Driflausir öxlar og hlutar til þeirra


7090 – Ökuhjól og hlutar og fylgihlutir til þeirra, þó ekki felgur og hlutar þeirra, sem hafa ekki fengið yfirborðsmeðferð, og felgur og hlutar þeirra, óunnið eða grófunnið


9299 – Hljóðdeyfar og útblástursrör þó ekki venjulegir hljóðdeyfar með hliðargreinum sem eru ekki lengri en 15 cm

9390 – Tengsli og hlutar til þeirra

9490 – Stýrishjól, stýrisstangir og stýrisvélar

9999 – Annað, þó ekki hlífar fyrir stýrishjól